Seinasta paradís á jørð – Færeyjar

Ljósmyndari
Virginie Surdej
Samframleiðslan Seinasta paradís á jørð er tilnefning Færeyja til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Tilnefndir eru leikstjórinn Sakaris Stórá, handritshöfundarnir Mads Stegger og Tommy Oksen og framleiðandinn Jón Hammer.

Ágr

Kári kann að meta einfaldleika lífsins í litla bænum sem hann býr í. Þau Silja systir hans syrgja látna móður sína í hljóði. Á meðan Kári finnur huggun í því að vinna í fiskvinnslunni reynir Silja að þrauka skólagönguna og pabbi þeirra fer aftur á sjóinn í fiskibát. Þegar útlit er fyrir að fiskvinnslu eyjarinnar verði lokað raskar það hinu viðkvæma jafnvægi í tilveru þeirra. Á meðan vini Kára dreymir um að komast burt af eynni og hefja nýtt líf tekur hann annars konar ákvörðun: að verða um kyrrt og takast á við tilveruna.

Rökstuðningur dómnefndar

Færeyski leikstjórinn Sakaris Stórá tekst á við hæðir og lægðir tilverunnar á afskekktum eyjum í sinni bestu kvikmynd til þessa. Myndin hverfist ekki beinlínis um þá ákvörðun að vera um kyrrt eða fara burt, fremur um þemu á borð við persónulegan missi, tilfinningalega örmögnun og vistkerfiskrísu. Þegar móðir Kára deyr tapar fjölskyldumeðlimirnir bæði áttum og samkennd. Það að fiskistofninn dragist saman gæti skilist sem varfærnisleg vísbending um að ekki sé allt með felldu hjá móður jörð. Kári þarf að læra að tjá væntumþykju á ný – rétt eins og heimur fiskveiðanna, þar sem karlmenn ráða ríkjum, þarf að læra að laga sig að þörfum náttúrunnar. Hinar sterku andstæður kvenna í sjósundi og hörkunnar í fiskvinnslunni bjóða upp á skáldlega myndlíkingu um það að tengjast að nýju.

Sakaris Stórá fellur ekki í þá gryfju að skreyta atburðarásina með dramatískum fléttum. Fremur mætti segja að hann afhjúpaði af næmni þá ísköldu sorg sem persónurnar upplifa, svo og þögla baráttu þeirra fyrir því að græða sárin. Færeyska orðið „heim“ vísar bæði til heimilis og heimsins og í kvikmyndinni er ýjað að því að samkenndin sé lykillinn að því að komast aftur heim. Hin ungu Sámal H. Hansen, Bjørg B. Egholm og Bjørn M. Mohr standa sig frábærlega í hlutverkum sínum, með góðu fulltingi eldri og reyndari leikara, og blæbrigðaríkt samspil þeirra vitnar um færni Stórá sem leikstjóra.

Einstök kvikmyndataka og grípandi tónlist eiga einnig þátt í að gera þessa dansk-færeysku samframleiðslu að merkustu færeysku kvikmyndinni hingað til, og þar með að verðugu framlagi til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.

Sakaris Stórá

Sakaris Stórá er fæddur 1986 og ólst upp á Sandey í Færeyjum. Að loknu kvikmyndaskólanámi í Noregi flutti hann aftur á heimaslóðirnar til að stunda kvikmyndagerð, enda trúir hann á mikilvægi þess að búa til kvikmyndir á færeysku um lífsbaráttu fólks í nútímasamfélagi. Næmar persónulýsingar Stórá og gjöfult samstarf við leikara hafa aflað myndum hans ýmissa viðurkenninga.

Mads Stegger

Mads Stegger er danskur handritshöfundur sem útskrifaðist frá kvikmyndaskóla Noregs árið 2018. Árið 2023 var hann meðhöfundur Hypnosen, fyrstu kvikmyndar Ernst De Geers, sem var heimsfrumsýnd í aðalkeppninni á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary þar sem hún vann til þriggja verðlauna. Hypnosen var einnig tilnefnd til átta Guldbagge-verðlauna og hreppti meðal annars verðlaunin fyrir besta frumsamda handrit. Nýlegustu verkefni Mads Stegger sem handritshöfundar eru kvikmyndin Seinasta paradís á jørð eftir Sakaris Stórá og Solomamma, væntanleg kvikmynd Janicke Askevold, sem verður frumsýnd veturinn 2025–2026.

Tommy Oksen

Tommy Oksen er fæddur og uppalinn á Suður-Jótlandi. Hann nam við European Film College og flutti að loknu námi til Kaupmannahafnar þar sem hann lærði handritaskrif við Super16. Hann hefur unun af handritaskrifum og hinu skapandi ferli sem þeim fylgir, en lumar einnig á sögum sem hann dreymir um að leikstýra sjálfur. Hann býr ásamt eiginkonu og tveimur börnum í bæ skammt frá Kaupmannahöfn.

Jón Hammer

Jón Hammer er verðlaunaður kvikmyndaframleiðandi sem hefur reynslu af alþjóðlegum samframleiðslum, heimildarmyndum og frásagnarlist í ýmsum myndum. Hann hóf ferilinn árið 2012 hjá Zentropa í Danmörku og ræktaði þar hæfileika sína sem framleiðandi áður en hann stofnaði færeyska framleiðslufyrirtækið Kykmyndir árið 2017.

Aðalleikstjóri: Sakaris Stórá
Aðalhöfundar: Tommy Oksen, Mads Stegger, Sakaris Stórá
Aðalframleiðandi: Jón Hammer
Framleiðslufyrirtæki: Adomeit Film, Kykmyndir
Dreifing: Øst for Paradis
Alþjóðleg dreifing: Reinvent Studios
Titill á frummáli: Seinasta paradís á jørð
Frumsýning í heimalandi: 10. apríl 2025
Lengd: 87 mínútur