Sofie Asplund

Ljósmyndari
Max Jansson
Sofie Asplund hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Álenski flúrsópraninn Sofie Asplund hefur skipað sér í hóp fjölhæfustu og tjáningarríkustu óperusöngvara á Norðurlöndum. Hún hefur meðal annars sungið í Konunglegu óperunni í Stokkhólmi, Gautaborgaróperunni og Norsku þjóðaróperunni og hlotið lof fyrir túlkun sína sem Zerbinetta í Ariadne á Naxos, Gilda í Rígólettó og Kúnígúnd í Birtingi. Hún hefur einnig vakið alþjóðlega athygli fyrir þátttöku sína í verkefni Barböru Hannigan, Equilibrium Young Artists 2019.

Auk óperunnar hefur Asplund hlotið lof fyrir einsöng sinn með hljómsveitum eða hljóðfæraleikurum. Plata þar sem hún flutti „Les illuminations“ eftir Britten og „Ariettes oubliées“ eftir Debussy, ásamt sænsku kammersveitinni Lunds Kammarsolister (Naxos, 2021), var tilnefnd til hinna sænsku Grammis-verðlauna og hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir næma og greindarlega túlkun. Fjölhæfni hennar sem listamanns hefur komið enn betur í ljós með þátttöku í söngleikjum, meðal annars sem María í West Side Story í Gautaborgaróperunni og sem Christine í Óperudraugnum, bæði í Finnsku þjóðaróperunni og Gautaborgaróperunni.

Sofie Asplund hefur einnig haldið nánum tengslum við heimaslóðirnar og hefur frumflutt fjölda óperuverka á Álandseyjum, meðal annars aðalhlutverkið í óperunni Lisbeta eftir íslenska tónskáldið Karólínu Eiríksdóttur.

Með því að syngja bæði rótgróin og ný tónverk hefur Asplund lagt sitt af mörkum til að auka veg norrænnar tónlistar og óperutónlistar á Álandseyjum og Norðurlöndum. Hún hefur auðgað fjölda tónlistargreina með rödd sinni og sviðsframkomu og með list sinni heldur hún áfram að veita innblástur bæði áheyrendum sínum og nýjum kynslóðum söngvara. Mikil listræn breidd, alþjóðleg reynsla og djúpstæð tengsl við norræna tónlistarhefð gera Sofie Asplund að verðugum kandídat til að hljóta tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.