Per „Texas“ Johansson

Ljósmyndari
Tina Axelsson
Tvíeykið Hildá Länsman & Tuomas Norvio hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Dajan.

Den sämsta lösningen av alla („Versta lausnin af öllum“) eftir Per „Texas“ Johansson samanstendur af níu fjölbreyttum tónsmíðum sem sameinaðar eru af listilegum úsetningum fyrir frábæran hóp hljóðfæraleikara. Form og tjáningarmáti eru breytileg en öllu er haldið saman af sterkri listrænni heild og vandlega útfærðri hljómrænni sýn. Verkið hefur útgangspunkt í djasstónlist og þróast þaðan í stórbrotna tónlist sem rúmar endalausa möguleika. 

Hljóðfærasetning verksins er eitt helsta sérkenni þess. Klarinettur á mismunandi tónsviðum, tenórsaxófónn og auk þess óbó og enskt horn, hljóðfæri sem eru sjaldséð í djasstónlist, koma saman og skapa auðugan og blæbrigðaríkan hljóðheim. Ásamt hljóðfærum á borð við pedal-stálgítar, víbrafón, fiðlu, píanó, stofuorgel, kontrabassa og trommur myndar þetta heildarhljóm þar sem hvert hljóðfæri og hver hljóðfæraleikari leggja sitt af mörkum. 

Útkoman er verk sem er afar ríkt af smáatriðum og með mikla hljómræna breidd, þar sem jafnvægi tónsmíða og spuna er fetað af mikilli nákvæmni. Den sämsta lösningen av alla er mikilsvert framlag til norrænnar samtímatónlistar og styrkir Per „Texas“ Johansson enn frekar í sessi í tónlistarsenu Norðurlanda.