Verðlaunahafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2022

Lamb, winner of Nordic Council Filmprize 2022
Photographer
Magnus Fröderberg, norden.org
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022 hlýtur íslenska kvikmyndin Dýrið eftir handritshöfundana Sjón og Valdimar Jóhannsson, leikstjórann Valdimar Jóhannsson og framleiðendurna Hrönn Kristinsdóttur og Söru Nassim.

Rökstuðningur dómnefndar

Í Dýrinu skapar Valdimar Jóhannsson einstaka frásögn um missi, sorg og hrylling. Þessi afar frumlega saga tekst á við sígild viðfangsefni um samskipti manns og náttúru og þær afleiðingar sem það getur haft að ögra þeim krafti sem í henni býr.  Hún fjallar líka um þá fegurð og grimmd sem felst í foreldrahlutverkinu og hvernig við erum reiðubúin að grípa til örþrifaráða til að verja þá hamingju sem okkur finnst við eiga tilkall til.

 

Upplifunin af kvikmyndinni er í senn truflandi og sérstæð. Næmni dýra fyrir jafnvel smæstu frávikum í umhverfinu er notuð með afar áhrifaríkum hætti til að skapa andrúmsloft undirliggjandi ógnar. Þetta er undirstrikað á meistaralegan hátt með gaumgæfinni kvikmyndatöku og uggvekjandi hljóðheimi. 

 

Hárbeitt notkun á fáum en merkingarþrungnum þáttum skapar andrúmsloft yfirvofandi hættu, svo úr verður ágeng stemning og áhrifamikil kvikmyndagerð.

 

Dýrið er tilkomumikil frumraun Valdimars Jóhannssonar leikstjóra.

 

Titill á frummáli: Dýrið

Titill á ensku: Lamb

Leikstjóri: Valdimar Jóhannsson

Handritshöfundar: Sjón og Valdimar Jóhannsson

Framleiðendur: Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim