Víkingur Heiðar Ólafsson

Ljósmyndari
Ari Magg - Deutsche Grammophon
Víkingur Heiðar Ólafsson hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hefur fangað huga bæði tónlistarunnenda og gagnrýnenda með djúphugulum tónlistarflutningi sínum. Upptökur hans fyrir Deutsche Grammophon nálgast milljón spilanir á streymisveitum og hafa aflað honum fjölda verðlauna. Víkingur hefur meðal annars fengið Fálkaorðuna og Útflutningsverðlaun forseta Íslands. 

Plötur hans hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda, meðal annars Philip Glass: Piano Works (2017), Johann Sebastian Bach (2018) og J.S. Bach: Goldberg Variations (2023) sem hann hlaut Grammy-verðlaun fyrir. 

Veturinn 2023–2024 helgaði Víkingur tónleikaferðalagi um heiminn þar sem hann lék Goldberg-tilbrigðin. Dagskrá hans nú í vetur er býsna fjölbreytt og inniheldur meðal annars tónleikaferðalag um Evrópu ásamt The Cleveland Orchestra, London Philharmonic Orchestra og Tonhalle-Orchester Zürich, auk þess sem Víkingur mun koma fram ásamt Berlínarfílharmóníunni á tónlistarhátíðinni BBC Proms. Vorið 2025 flytur hann þrjár síðustu sónötur Beethovens á fjölda tónleika í Bandaríkjunum og Evrópu. 

Hin virta útvarpsstöð Classic FM setti Víking á lista yfir 25 bestu píanóleikara allra tíma og skipaði honum í 16. sæti, beint á eftir Mozart sem lenti í 15. sæti.

Þetta er í þriðja sinn sem Víkingur Heiðar er tilnefndur til tónlistarverðlaunanna en hann var einnig tilnefndur árin 2017 og 2021.