Vilde Frang
Vilde Frang (f. 1986) hefur mikla sérstöðu sem klassískur fiðluleikari og er þekkt fyrir einstæðan hljóm, djúpan músíkalskan skilning og mikla tæknilega nákvæmni. Hún hefur spilað á virtustu tónleikastöðum heims, hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir plötur sínar og markað sér sess sem einstök rödd innan alþjóðlegs tónlistarlífs.
Vilde Frang kann að mynda hendingar af miklum krafti, næmleika og blæbrigðum og þetta ljær túlkun hennar djúpa og sanna tilfinningalega vídd. Hún hefur gríðarlega tæknilega færni en tæknin er þó aldrei markmið í sjálfri sér, heldur aðeins verkfæri í þjónustu tónlistarinnar. Á sólótónleikum sýnir hún næmni sem minnir á flutning kammertónlistar og einnig mikla samskiptahæfni, sem gerir að verkum að þegar hún leikur með hljómsveit eða hópi verður samspilið samfellt og lifandi.
Vilde Frang varast stirðleika og fullkomnunaráráttu í flutningi sínum; leikur hennar getur virst nánast spunakenndur og ósjálfráður. Mesta aðdáun vekur hæfni hennar til að sameina tæknilega snilld og ófyrirsjáanlega, tjáningarríka leikgleði. Þetta er sjaldgæf blanda sem gerir túlkun hennar grípandi og líflega. Hún er listamaður sem túlkar ekki aðeins tónlist heldur kemur henni til að anda, skjálfa og koma á óvart, aftur og aftur.