Walls – Akinni Inuk – Grænland

Ljósmyndari
Ánorâk Film
Grænlenska heimildamyndin Walls – Akinni Inuk er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Tilnefnd eru leikstjórarnir Sofie Rørdam og Nina Paninnguaq Skydsbjerg og framleiðandinn Emile Hertling Péronard.

Synopsis

Tvær sterkar grænlenskar konur eiga báðar hræðilega fortíð og óreiðukennda nútíð – önnur á bak við lás og slá, hin undir sléttu og felldu yfirborði. Þetta er heillandi ferðalag um réttlæti, frelsi og það að fá annað tækifæri í lífinu. 

Rökstuðningur dómnefnda

Walls – Akinni Inuk er heimildamynd sem unnið hefur verið að í átta ár. Leikstjórarnir Sofie Rørdam og Nina Paninnguaq Skydsbjerg hafa nálgast viðfangsefni sitt varfærnislega og með breytilegum áherslum á hinu langa framleiðslutímabili myndarinnar. Myndin sýnir með áhrifaríkum hætti hve óútreiknanlegt það getur verið að starfa lengi að gerð heimildamyndar. Hin þrjú svið myndarinnar – sjálfsævisögulegt efni sem tekið er upp af föngunum, myndin sem dregin er upp af fanganum Ruth og hin vaxandi vinátta Ruthar og Ninu – koma saman í blæbrigðaríkri og margslunginni frásögn. Heimildamyndin tekst á við erfið umfjöllunarefni á borð við morð, fangelsisdóm, ofbeldi og vanrækslu. Í leikstjórn hennar og klippingu hefur þó verið sneitt hjá því að dramatísera viðfangsefnið eða lýsa því með óþarflega hástemmdum hætti. Þess í stað einkennist myndin af lágstemmdri hlýju, bjartsýnum stundum og jafnvel fyndni inni á milli. Hreinskilnisleg efnistök, laus við tilfinningasemi, og hæglát kímni kalla fram sérstæðan frásagnartón með rammgrænlenskum einkennum. Frumsamin tónlist eftir Gustav Lynge Petrussen undirstrikar þennan tón með stórkostlegum hætti. Heillandi landslagið sem fléttað er inn í rólegar senur, þar sem Ruth og Nina eiga í innilegum samtölum, skapa trúverðugleika fyrir þá innsýn sem þær öðlast smám saman í sín sameiginlegu örlög. Gegnum hlutskipti þessara tveggja kvenna, sem hefðu hæglega getað víxlast, kannar myndin birtingarmyndir frelsis og sjálfstæðis gegnum kynslóðirnar og hversu brothætt og ófyrirsjáanlegt það er, bæði fyrir einstaklinga og samfélög. Þetta þema verður sérstaklega grípandi í samhengi við utanaðkomandi áhrifaþætti, líkt og nýlendustefnu.

Sofie Rørdam

Sofie Rørdam er dönsk kvikmyndagerðarkona og ævintýramanneskja sem hefur ávallt haft áhrif og breytingar að leiðarljósi í verkum sínum. Hún hefur búið og starfað víða um heim, einkum í Asíu þar sem hún hefur unnið að kvikmyndagerð og sinnt friðarstarfi á sviði mannréttinda og með mannsandann í fyrirrúmi. Sofie Rørdam er „explorer-in-residence“ hjá Kensington Tours. Í starfinu nýtir hún fjölbreyttan bakgrunn sinn, en hún er útlærð í Betzavta-aðferðinni (lýðræðisþjálfun) og er einnig lærður leiðbeinandi uppbyggingarhringja (e. restorative circles) og jógakennari. Hún kafar í hin sterku tengsl milli þess persónulega og pólitíska – hinna félagslegu og andlegu formgerða okkar. Sofie Rørdam nam fjölmiðlafræði við háskólann í Hong Kong, er með B.A.-próf í kvikmynda- og fjölmiðlafræði og meistarapróf í sjónrænni menningarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla. 

Nina Paninnguaq Skydsbjerg

Nina Paninnguaq Skydsbjerg er grænlenskur kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri sem hefur unnið á sviði skapandi greina frá árinu 2010. Hún hefur einkum fengist við verkefni með grænlensku samstarfsfólki þar sem grænlenskar frásagnir eru í fyrirrúmi. Leikstjórnarfrumraunin Walls – Akinni Inuk er mikilvægt skref á ferli hennar þar sem hún kafar í flókin viðfangsefni á borð við réttlæti, refsingu og sjálfsmynd. Hún hefur áður framleitt myndina Alanngut Killinganni (The Edge of the Shadows) sem hlaut tilnefningu til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2023 og varð þar með fyrsta framlag Grænlands til verðlaunanna. 

Emile Hertling Péronard

Emile Hertling Péronard er grænlenskur kvikmyndaframleiðandi sem hlotið hefur ýmsar viðurkenningar og verið tilnefndur til Óskarsverðlauna. Hann er búsettur í Danmörku og starfar hjá framleiðslufyrirtækinu Ánorâk Film, sem er með starfsemi í bæði Nuuk og Kaupmannahöfn. Árið 2020 stofnaði hann fyrsta framleiðslufyrirtæki Grænlands, Polarama Greenland, til þess að efla grænlenska kvikmyndagerð og ryðja brautina fyrir fleiri grænlensk kvikmyndaverkefni. Emile Hertling Péronard var valinn Producer on the Move á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2023. Hann er einnig formaður Arctic Indigenous Film Fund, stjórnarmeðlimur í ARTEF – the Anti-Racism Taskforce for European Film og framkvæmdastjóri Nuuk International Film Festival. Árið 2023 hlaut hann grænlensku kvikmyndaverðlaunin Innersuaq fyrir störf sín. 

Aðalleikstjóri: Sofie Rørdam, Nina Paninnguaq Skydsbjerg

Aðalframleiðandi: Emile Hertling Péronard.

Framleiðslufyrirtæki: Ánorâk Film

Titill á frummáli: Walls – Akinni Inuk

Frumsýning í heimalandi: 8. apríl 2025

Lengd: 75 mínútur