46. Bryndís Haraldsdóttir (Spørgsmål)
Mig langar að þakka kærlega fyrir það að þiggja boð okkar hjá Norðurlandaráði og taka þátt í þessum umræðum hér. Það er mikilvægt að ítreka það að Norðurlandaráð býður fulltrúum allra átta landanna að taka þátt í þessari umræðu, þannig takk fyrir að vera hér með okkur í dag. Ég vil reyndar líka fá að þakka fyrir ofboðslega góðar móttökur sem ég fékk á Ólafsvöku og við setningu þingsins hjá ykkur í sumar. Þar sagðir þú eitthvað á þá leið: Þolinmæði okkar er á þrotum. Þar talaðir þú um að í mörg ár hefðuð þið Færeyingar óskað eftir sjálfstæðri aðild að Norðurlandaráði. Það er því gott að við erum að ræða þetta núna og við munum taka það fyrir síðar á þinginu hvernig við sjáum fyrir okkur möguleika á breytingu Helsingfors-sáttmálans. En mig langar að spyrja ráðherrann: Sér hann einhver vandamál tengd stjórnarskrá Danmerkur? Er það yfir höfuð eitthvert vandamál sem ástæða er til að hafa áhyggjur af?
Skandinavisk översättning
Jag skulle vilja framföra ett hjärtligt tack för att du har accepterat inbjudan från oss i Nordiska rådet att delta i diskussionen här i dag. Det är viktigt att poängtera att Nordiska rådet bjöd in alla åtta nordiska länder till denna debatt, och därför tackar jag för att du har kommit. Jag skulle faktiskt också vilja tacka för det fantastiskt fina mottagande som jag fick under Ólavsøkan och i samband med öppnandet av Lagtinget i somras. Då sa du ungefär: ”vårt tålamod har tagit slut”. Du beskrev hur Färöarna under många års tid har begärt att bli självständiga medlemmar av Nordiska rådet. Därför är det bra att vi nu har börjat diskutera detta, och vi kommer senare under sessionen att ta upp hur vi skulle kunna ändra Helsingforsavtalet. Men jag skulle vilja fråga ministern: Anser han att det finns problem med detta med hänsyn till den danska grundlagen? Handlar det överhuvudtaget om ett problem som vi behöver bekymra oss över?