74. Bjarni Benediktsson (Svar på spørgsmål)

Jú, líkt og ég lét getið hér áðan þá höfum við verið mjög opin og jákvæð fyrir því að styðja við Færeyjar og Grænland sem hafa komið fram með þessa ósk. Við höfum átt í góðum samskiptum við bæði ríkin alla tíð. Þú vísaðir til 80 ára afmælis lýðveldisins. Sagan okkar gerir það að verkum að við eigum mjög auðvelt með að tengja við þessa ósk og þá hugmynd sem að baki henni býr, að ykkur muni farnast best eftir því sem þið fáið í ríkara mæli að standa á eigin fótum og af þeirri ástæðu höfum við verið jákvæð gagnvart þessu. Líkt og ég gat um hérna áðan þá finnst mér að nýlegir atburðir, t.d. bréfið sem Mette skrifaði í síðustu viku, vera til vitnis um að hlutirnir eru að þróast í þá átt sem þið hafið lengi óskað eftir. Ég tek eftir því sem sagt er, að ykkur finnst að tíminn sé að renna út og þið hafið ekki mikið meiri þolinmæði og ég heyri að það eru nokkuð stór orð sem falla í því samhengi. En ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn á að úr þessu leysist.

 

Skandinavisk översättning

Jo, som jag nämnde för en stund sedan så har vi haft en mycket öppen och positiv inställning till att stödja Färöarna och Grönland som har framfört denna önskan. Våra relationer med båda länderna har alltid varit bra. Du hänvisade till republikens 80-årsjubileum. Vår historia gör det mycket lätt för oss att sympatisera med en önskan som denna och tanken som ligger bakom, att ni kommer att lyckas bäst om ni i högre grad får stå på egna fötter, och det är skälet till att vi har varit positiva till detta. Som jag redan har sagt är jag av den meningen att vissa saker som har hänt den sista tiden, t.ex. brevet som Mette skrev förra veckan, vittnar om att utvecklingen går åt det håll som ni länge har önskat. Jag lägger märke till det som sägs, att ni tycker att tiden håller på att rinna ut och att ert tålamod börjar ta slut, och jag hör att man använder en del starka ord. Men jag tänker tillåta mig att vara optimistisk om att det går att hitta en lösning.

Information

Talenummer
74
Type
Svar på spørgsmål
Status
Waiting for transcription
Dato