9. Hanna Katrín Friðriksson (Spørgsmål)
Forsætisráðherra. Við erum að ræða hér frið og öryggi á norðurslóðum og mig langar að tengja þau mikilvægu málefni við stöðu barna og ungmenna á Norðurlöndum vegna þess að á sama tíma og við viljum tryggja Norðurlönd sem besta stað í heimi fyrir börn og ungmenni sýna gögn okkur að andleg heilsa þeirra og líðan fer almennt versnandi. Vanlíðan barna og ungmenna tekur á sig mismunandi myndir sem í sumum tilfellum eru bæði myrkar og sorglegar og við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að grípa þessi ungmenni. Við verðum að bjóða þeim framtíðarsýn sem gefur þeim von á tímum erfiðs efnahagsástands, á tímum stríðsátaka, á tímum loftslagsógnar og á tímum skipulagðra falsfrétta sem oft og tíðum er beint skipulega að börnum og ungmennum. Þetta eru sameiginlegar áskoranir okkar. Getum við að mati ráðherra lagt fram sameiginlegar og þverfaglegar lausnir sem gagnast börnum og ungmennum á Norðurlöndum? Það er ekki eftir neinu að bíða, börnin okkar geta ekki beðið lengur.
Skandinavisk översättning
Statsminister! Vi diskuterar fred och säkerhet i Arktis, och jag skulle vilja koppla denna viktiga fråga till nordiska barns och ungdomars ställning, eftersom samtidigt som vi vill göra Norden till världens bästa region för barn och ungdomar så pekar utredningar på en generell försämring av deras psykiska hälsa och välmående. Dåligt psykiskt välmående hos barn och ungdomar tar sig olika uttryck, i vissa fall både mörka och sorgliga, och vi måste göra allt vi kan för att ta hand om dessa unga människor. Vi måste kunna bjuda på en vision för framtiden som ger dem hopp i en tid av ekonomiska svårigheter, i en tid av konflikter och krig, i en tid av klimathot, och i en tid av organiserad spridning av desinformation, som ofta riktas systematiskt till barn och ungdomar. Det handlar här om utmaningar som är gemensamma för oss alla. Tror ministern att vi kan utveckla gemensamma och tvärvetenskapliga lösningar som barn och ungdomar i Norden kan dra nytta av? Det är bråttom, våra barn kan inte vänta längre.