72. Bjarni Benediktsson (Svar på spørgsmål)

Þakka þér fyrir. Ég tel að þú sért að benda hérna á mjög mikilvæga þætti sem varða öll Norðurlöndin og við höfum ekki farið varhluta af því að hér hefur verið mjög aukin spenna. Við getum orðað þetta sem svo að frá árinu 2006, þegar bandaríski herinn lokaði herstöð sinni hér á Keflavíkurflugvelli og yfirgaf Ísland hvað varðar varanlega viðveru þá hefur í raun og veru ótrúlega mikið breyst. Næsti stóri tímapunktur var 2014 þegar Rússar innlimuðu Krímskaga. Á þeim tímapunkti gjörbreyttist heimssýn ekki bara okkar Íslendinga heldur Bandaríkjamanna og NATO-ríkjanna. Skyndilega hafði það gerst á innan við einum áratug að Ísland hafði færst úr því að vera lágspennusvæði yfir í að vera á miðju svæði sem þyrfti að fá meiri og aukna og sérstaka athygli. 

Eins og við öll þekkjum, hvernig sagan hefur síðan skrifað sig, þá erum við eftir innrásina í Úkraínu komin í gjörbreytt ástand. Þetta hefur leitt til þess að ekki bara þið á Norðurlöndunum, í Skandinavíu, hafið verið að endurskrifa varnaráætlanir ykkar heldur höfum við þétt mjög mikið samstarf okkar bæði við NATO og við Bandaríkjamenn. Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli hefur verið efldur, þar hefur verið fjárfest mjög mikið til að tryggja að öll aðstaða sé til staðar og við höfum lagt stóraukna áherslu á að hlutverki okkar sem gistiríkis getum við sinnt af myndugleik. Það þýðir að þegar hingað koma sveitir sem eru að sinna öryggisgæslu, eru t.d. með flugsveitir sem fljúga hér um lofthelgina eða við erum með kafbátaleitarvélar sem svífa líka um hafsvæðið kringum Ísland að leita að og finna og staðsetja rússneska kafbáta, þá þurfum við að vera sá samstarfsaðili sem rís undir því hlutverki sem NATO-aðildin leggur okkur á herðar. Þannig höfum við þurft að fjárfesta bæði í þekkingu og innviðum og erum á vettvangi þjóðaröryggisráðs að leggja mat á næstu og frekari skref.

 

Skandinavisk översättning

Tack ska du ha! Jag tror att du här pekar på mycket viktiga faktorer som är relevanta för alla de nordiska länderna, och vi har visserligen blivit påverkade av den ökade spänningen i området. Vi kan säga som så att sedan 2006, när USA stängde sin bas i Keflavik och därmed inte längre hade ständig militär närvaro på Island, så har vi sett helt otroliga förändringar. Den nästa stora händelsen var Rysslands annektering av Krim 2014. Den innebar en helomvändning av världsåskådningen, inte bara för oss islänningar utan också för amerikanerna och de andra Natoländerna. Island hade plötsligt, på mindre än ett årtionde, förändrats från att vara ett lågspänningsområde till att befinna sig i mitten av ett område som var i behov av mer och ökad och särskild uppmärksamhet.

Som vi alla vet, sett till hur historien har utvecklat sig, så befinner vi oss efter invasionen av Ukraina i ett helt nytt läge. Det har lett till att inte bara ni i övriga Norden, i Skandinavien, har reviderat era försvarsplaner, utan vi har också i mycket stor grad förstärkt vårt samarbete med Nato och med USA. Beredskapen på Keflaviks flygplats har stärkts, enorma investeringar har gjorts för att garantera att all infrastruktur finns på plats, och vi prioriterar i högre grad att kunna fylla vår roll som värdland på ett kraftfullt sätt. Det betyder att när trupper kommer hit i bevakningssyfte, t.ex. flygpatruller som bevakar luftrummet eller flygplan som flyger över havet runt Island för att upptäcka och spåra ryska ubåtar, så måste vi vara en samarbetspartner som klarar av sin roll som Natomedlem. Vi har därför varit tvungna att investera i både kunskapsuppbyggnad och infrastruktur, och Rådet för nationell säkerhet har inlett ett arbete för att överväga ytterligare åtgärder.

Information

Talenummer
72
Type
Svar på spørgsmål
Status
Waiting for transcription
Dato