76. Bjarni Benediktsson (Svar på spørgsmål)
Þakka þér fyrir. Ég tek undir mikilvægi þess að þessi mál séu rædd og m.a. á þessum vettvangi. Ég tel reyndar að eftir að Finnland og Svíþjóð hafa gerst fullir meðlimir að NATO þá geti kannski það eitt og sér dálítið rutt brautina og opnað fyrir frekari umræður á þessum vettvangi. Þótt þetta sé ekki í eðli sínu varnarsamstarf þá er okkur öllum ljóst að heimurinn hefur breyst og líkt og ég vék að hérna í mínu inngangserindi þá verðum við að gera nákvæmlega sömu kröfu hér á norðurslóðum eins og við gerum almennt í öllum öðrum samskiptum um að alþjóðalög séu virt. Við ætlum að tryggja hér sjálfbært, friðsælt svæði þar sem alþjóðalög eru í fullu gildi og það verður enginn afsláttur af gildi alþjóðalaga.
Hárréttur punktur sem þú ert með varðandi ásælni annarra ríkja og við verðum að minna á að það sem er að gerast í Úkraínu er árás á gildin okkar. Það eru ákveðin gildi sem hafa orðið grundvöllur að þeim lífsgæðum sem við fáum að njóta, og okkar borgarar, á norðurslóðum, þ.e. á öllum Norðurlöndunum. Hvar er lýðræði betur fúnkerandi heldur en á norðurslóðum? Hvar er velsældin mest í heiminum? Hvar er velferðin best tryggð? Hvar er jafnrétti best? Hvar er verið að tala um grænan vöxt inn í framtíðina? Hvar er verið að nota grænar lausnir mest til þess að stunda iðnað? Mannréttindi best tryggð? Það er á norðurslóðum. Ef við gætum ekki að okkur og gætum okkar sérstaklega á þeim sem eru að grafa undan því sem er forsendan fyrir þessu öllu saman — árásir á lýðræði, árásir á mannréttindi, árásir á alþjóðalög, það eru árásir á gildin sem hafa skapað lífsgæðin á Norðurlöndum og við þurfum að standa saman og mæta því af fullri hörku.
Skandinavisk översättning
Tack ska du ha! Jag håller med om att det är viktigt att diskutera frågan, bl.a. här i detta forum. Jag anser faktiskt att nu när Finland och Sverige har tagit steget till fullt medlemskap i Nato, så kan det kanske på sätt och vis fungera som en vägröjare och öppna för en bredare diskussion om frågan. Även om det i och för sig inte handlar om ett försvarssamarbete, så har vi alla klart för oss att världen har förändrats, och som jag nämnde i mitt anförande så måste vi ställa exakt samma krav här i Norden som vi vanligtvis gör i alla andra relationer om att internationell rätt efterlevs. Vi vill här värna om ett hållbart, fredligt område där internationell rätt gäller fullt ut och inga undantag tillåts från internationella lagar.
Du har helt rätt när det gäller andra staters försök att öka sitt inflytande, och vi måste påminna om att det som händer i Ukraina är ett angrepp på våra värden. Vissa värden har kommit att bilda grunden till den livskvalitet som vi åtnjuter, och alla våra medborgare, här upp i norr, dvs. i alla de nordiska länderna. Var fungerar demokrati bättre än i Norden? Var i världen är välståndet högre? Var garanteras välfärden på ett bättre sätt? Var finns det mest jämställdhet? Var diskuterar man grön tillväxt inför framtiden? Var används gröna lösningar i mest utsträckning inom industrin? Starkaste garantier för mänskliga rättigheter? Det är i Norden. Om vi inte är vaksamma och aktar oss särskilt för dem som undergräver det som är grunden för allt detta — attacker på demokrati, attacker på mänskliga rättigheter, attacker på internationella lagar, det handlar om attacker på de värden som har skapat den nordiska levnadsstandarden — och vi måste stå samman och motverka detta med hårda tag.