Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022: Kynnist hinum tilnefndu á bókamessunni í Helsingfors

30.10.22 | Viðburður
The nominees for the Nordic Council Literature Prize 2022
Ljósmyndari
norden.org
Höfundarnir sem tilnefndir eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2022 verða á bókamessunni í Helsingfors sunnudaginn 30. október.

Upplýsingar

Dagsetning
30.10.2022
Tími
14:30 - 17:00
Staðsetning

Helsinki book fair
Messukeskus
Messuaukio
Helsinki
Finnland

Gerð
Viðburður

Gestum gefst færi á að kynnast betur nokkrum af áhugaverðustu höfundum Norðurlanda í þrennum pallborðsumræðum. Finnski rithöfundurinn Juha Itkonen, sem var tilnefndur til verðlaunanna 2020, og Yukiko Duke frá Svíþjóð munu ræða við höfundana.

Höfundarnir sem taka þátt eru:

  • Solvej Balle (Danmörku)
  • Rakel Haslund-Gjerrild (Danmörku)
  • Kristina Carlson (Finnlandi)
  • Kaj Korkea-aho (Finnlandi)
  • Beinir Bergsson (Færeyjum)
  • Jessie Kleemann (Grænlandi)
  • Elísabet Jökulsdóttir (Íslandi)
  • Inghill Johansen (Noregi)
  • Mary Ailonieida Sómban Mari (Sápmi, Noregi)
  • Karin Erlandsson (Álandseyjum)

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Helsingfors 1. nóvember í tengslum við þing Norðurlandaráðs.