Dagur Norðurlanda í Færeyjum: Sögur af Norðurlöndum og hugmyndin um samþættasta svæði heims

22.03.25 | Viðburður
Nordiske flag
Ljósmyndari
norden.org
Stefnum við í átt til framtíðar með aukinni samþættingu á Norðurlöndum eða erum við í raun að fjarlægjast framtíðarsýnina um sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030? Og hvernig tengist hin klassíska orðræða um Norðurlönd geopólitískum veruleika framtíðarinnar þar sem norðurslóðir eru orðnar að mikilvægri og sterkri svæðisheild? Hlýðið á tvo fræðimenn, prófessor Johan Strang frá Finnlandi og Berg Djurhuus Hansen, deildarforseta frá Færeyjum, segja frá sínu sjónarhorni á stöðu Norðurlanda í dag og hvað framtíðin getur borið í skauti sér. Pallborð skipað sérfræðingum, m.a. Bjarna K. Petersen, samstarfsráðherra Færeyja og Önnu Falkenberg, þingkonu, mun svo ræða áskoranir og tækifæri í norrænu samstarfi á ólgutímum í alþjóðamálum. Það eru NORA, Norðurlandahúsið, Norræna félagið og utanríkis- og atvinnumálaráðuneyti Færeyja sem standa að viðburðinum.

Upplýsingar

Dagsetning
22.03.2025
Tími
15:00 - 17:00
Staðsetning

Færeyjar

Gerð
Netfundur

Athugið að viðburðurinn stendur frá 15–17 að GMT-tíma.

Dagskrá

Kl. 15.00         Setning – Bjarni K. Petersen, samstarfsráðherra

Kl. 15.05         Norðurlönd – samþættasta svæði heims – fyrir 60 árum?  

  • Erindi frá Johan Strang, dósent í Norðurlandafræðum við háskólann í Helsinki.

    Norræna ráðherranefndin hefur sett sér markmið um að Norðurlönd eigi að vera sjálfbærasta og samþættasta svæði í heimi árið 2030. Staðan í heimsmálunum hefur ýtt Svíþjóð og Finnlandi inn í NATO en einnig haft í för með sér spennu á nýjum sviðum. Og hvað varðar daglegt líf Norðurlandabúa sem lifa og starfa þvert á landamærin má spyrja hvort við höfum ekki verið nær markmiðinu fyri r60 árum en í dag. 

 Kl. 15.30         Sögur af Norðurlöndum 

  • Erindi frá Bergi Djurhuus Hansen, Ph.d., deildarforseti við deild færeyskrar tungu og bókmennta, Fróðskaparsetri Føroya.

    Orðræðan um heimshluta okkar er að breytast. Við tengjum Norðurlönd við samvinnu, velferð og sameiginlegan áhuga á menningu og listum. Norðurslóðir tengjum við einkum við strjálbýl svæði, loftslagsbreytingar, auðlindir, nýjar siglingaleiðir og hervæðingu. Sumir hlutar Norðurlanda eru í dag ýmist sagðir tilheyra norðurslóðum eða Norðurlöndum. Norðurslóðir eru ný og sterk svæðisheild, bæði pólitískt séð og í huga okkar. Hvað gerist þegar ein frásögn kemur í stað annarrar?

 Kl. 15.50         Hlé  

 Kl. 16.00         Umræður  

  • Pallborð: Bjarni K. Petersen, samstarfsráðherra Norðurlanda, Johan Strang, prófessor, Bergur Djurhuus Hansen, deildarstjóri, Anna Falkenberg, þingmaður í Danmörku og Liljan Weihe, þingmaður í færeyjum.  
  • Fundarstjóri: John Johannesen, blaðamaður.