Norræni dagurinn í Litháen: Trust and Resilience as Pillars of a Secure Nordic-Baltic Future

13.03.25 | Viðburður
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/Norden.org
Vertu með þegar fulltrúar Norðurlandaráðs og utanríkisráðuneyta Finnlands og Litháens taka þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni: „Stronger Together: Trust and Resilience as Pillars of a Secure Nordic-Baltic Future.“

Upplýsingar

Dagsetning
13.03.2025
Tími
15:00 - 17:00
Staðsetning

Sapieha Palace
Vilnius
Litháen

Gerð
Umræðufundur

Finnland og Álandseyjar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2025.Í formennskutíðinni verður mikil áhersla lögð á að efla viðnámsþrótt norrænu landanna og stuðla að umfangsmiklum viðbúnaði í tengslum við margs konar krísur og fjölþáttaógnir.

Samstarf norrænu og baltnesku landanna er mikilvægur þáttur í því að efla sameiginlegt öryggi og velferð á svæðinu öllu. Á tímum sem einkennast af stríðinu í Úkraínu, breyttu pólitísku landslagi, tíðari náttúruhamförum og nýjum fjölþáttaógnum hefur þörfin á auknum viðbúnaði, samhæfingu og samfélagslegum viðnámsþrótti aldrei verið meiri.

Í ljósi þessa munu fulltrúar Norðurlandaráðs og utanríkisráðuneyta Finnlands og Litháens taka þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni: „ Stronger Together: Trust and Resilience as Pillars of a Secure Nordic-Baltic Future.“ Þau munu greina frá stöðu mála, deila aðferðafræði og leita nýrra leiða til þess að vinna saman að því að byggja upp öruggari og viðnámsþolnari framtíð fyrir okkur öll.

Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen stendur fyrir viðburðinum ásamt sendiráði Finnlands í Vilníus og utanríkisráðuneyti Litháens.

Dagskrá

14.30 Dyrnar opna

15.00 Opnunarávarp

  • Helén Nilsson, framkvæmdastjóri skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen
  • Jaakko Lehtovirta, sendiherra Finnlands í Vilníus

15.10 Formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja. Norðurlönd 2025: Sameinuð og sterk. Ann-Sofie Stude, skrifstofustjóri skrifstofu norrænnar samvinnu, utanríkisráðuneyti Finnlands

 15.25 Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen: Áherslur 2025. Helén Nilsson, framkvæmdastjóri skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen

15.40 Pallborðsumræður „Stronger Together: Trust and Resilience as Pillars of a Secure Nordic-Baltic Future“

  • Maria Stockhaus, varaforseti Norðurlandaráðs
  • Annukka Ylivaara, varaformaður öryggismálanefndar, Finnland
  • Sigitas Mitkus, aðstoðarráðherra, utanríkisráðuneyti Finnlands
  • Ann-Sofie Stude, skrifstofustjóri skrifstofu norrænnar samvinnu, utanríkisráðuneyti Finnlands
  • Fundarstjóri: Linas Kojala, Geopolitics and Security Studies Center

16:40    Fyrirspurnatími   

Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen stendur fyrir viðburðinum ásamt sendiráði Finnlands í Vilníus og utanríkisráðuneyti Litháens.

On March 13, 2025, decision makers and experts from across the Nordic-Baltic region gathered at Sapieha Palace in Vilnius to discuss resilience, trust, and crisis preparedness.

Tengiliður