Sumarfundir Norðurlandaráðs 2025
Upplýsingar
Forsætisnefnd
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs kemur saman í Nuuk, Grænlandi. Forsætisnefndin er pólitísk stjórnarnefnd Norðurlandaráðs og ber ábyrgð á almennum pólitískum málum, áætlanagerð, fjármálum og síðast en ekki síst þinglegu samstarfi um utanríkis- og öryggismál.
Norræna velferðarnefndin
Sumarfundur velferðarnefndar fer fram í Storuman í Svíþjóð. Á dagskránni eru meðal annars málefni er varða geðheilbrigði ungmenna, samnorræna bólusetningarskrá og efnahagslegan ójöfnuð á Norðurlöndum.
Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin
Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin heldur sumarfund sinn í Stokkhólmi í Svíþjóð. Meðal annars verður rætt um lífeyrismál á milli landa, endurskoðun landamæraeftirlits og stafrænt afhendingaröryggi.
Norræna sjálfbærninefndin
Norræna sjálfbærninefndin heldur sinn fund í Maríuhöfn í Álandseyjum. Þar verður rætt m.a. um sjálfbærar fiskveiðar, öryggi fræja í sambandi við loftslagsbreytingar og veltihringrás Atlantshafsins og sambands hennar loftslags-, umhverfis-, og fæðuöryggi á Norðurlöndum.
Norræna þekkingar- og menningarnefndin
Norræna þekkingar- og menningarnefndin heldur sumarfund sinn á Skagen í Danmörku. Á dagskrá verða meðal annars fjölmiðlalæsi ungs fólks á Norðurlöndum, samstarf á milli æðri menntastofnana og fjármögnun samísku málnefndarinnar Sami Giellagáldu.