Þemaumræður: Öryggi, friður og viðbúnaður á Norður-Atlantshafi
Upplýsingar
Hotel Føroyar
Oyggjarvegur 45
Tórshavn
Færeyjar
Norðurlandaráð kemur saman á þemaþingi í Þórshöfn í Færeyjum undir yfirskriftinni „Öryggi, friður og viðbúnaður á Norður-Atlantshafi“.
Við lifum á sögulegum óvissutímum og norrænt og alþjóðlegt samstarf er mikilvægara en nokkru sinni.
Viðvarandi og vaxandi óvissa einkennir nú stöðuna í heiminum, Evrópu og á Norðurlöndum. Samtímis stendur heimurinn frammi fyrir margvíslegum og miklum viðfangsefnum svo sem hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og miklum loftslagsbreytingum, gervigreind og tölvuógnum, auknum ójöfnuði og ógnum við lýðræðið.
Innrás Rússa í Úkraínu hefur leitt til þess að staða öryggismála er mjög ótrygg og hefur verið fyrirferðarmikil í umræðunni í öllum frjálsum og lýðræðislegum samfélögum. Í kjölfarið hafa Finnland og Svíþjóð gengið í NATO. Norður-Atlantshafssvæðið er mikilvægt í geópólitísku samhengi og er því í viðkvæmri stöðu og það kallar á pólitíska athygli.
Hlutverk Norðurlandaráðs og aðgerðir norrænu landanna til þess að efla norrænt samstarf á sviði öryggis-, viðbúnaðar- og friðarmála eru mikilvægari en nokkru sinni og norrænu þjóðþingin gegna sérstöku hlutverki.
Norrænu löndin hafa alla tíð lagt áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um frið, lýðræði, loftslagið og réttindi frumbyggja jafnt á norðurslóðum sem í Norður-Atlantshafi.
En hvað geta norrænir þingmenn gert til þess að tryggja þetta? Hvað geta norrænir þingmenn lagt til málanna til þess að halda á lofti mikilvægi þess halda í heimsskipan sem byggist á lýðræði og reglum með frið að markmiði? Og á Norðurlandaráð að hvetja norrænu ríkisstjórnirnar til þess að grípa til beinna aðgerða á þessu sviði?
Þá er átt við beinar aðgerðir í tengslum við bæði almannavarnir og viðbúnað, stefnumiðaðar fjárfestingar, aukið samstarf og eflingu þeirra gilda sem tengja norrænu löndin saman.
Norðurskautssvæðið, Eystrasaltssvæðið og Norður-Atlantshafið eru þrjú svæði sem hafa mikla þýðingu fyrir norrænu löndin. Í formennskuáætlun Íslendinga í Norðurlandaráði árið 2024 er áhersla lögð á frið og öryggi á Norðurskautssvæðinu og í Norður-Atlantshafi og á þemaþingi Norðurlandaráðs koma norrænir þingmenn, ráðherrar og sérfræðingar því saman í Færeyjum til þess að ræða stefnu og aðgerðir til þess að tryggja öryggi, frið og viðbúnað á Norður-Atlantshafi.
Dagskrá þemaumræðna
Þriðjudagur 9. apríl 2024 kl. 9.05–10.30
Inngangsorð:
Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs – 2 mínútur.
Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja – 5 mínútur.
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra Íslands – 5 mínútur.
Gestaræðumaður:
Louise Dedichen, aðstoðaraðmíráll og formaður hernaðarnefndar Noregs – 15 mínútur.
Opnar umræður – athugasemdir og spurningar úr sal og pallborði (60 mínútur):
Í pallborði sitja: Louise Dedichen, Bryndís Haraldsdóttir, Pia Hansson (forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands), Guðrún Hafsteinsdóttir, Aksel V. Johannesen
Fundarstjóri: Rógvi Olavson (Háskólanum í Færeyjum)
Spurningar til að kveikja umræður
- Hvernig geta norrænu löndin með beinum hætti eflt samstarfið á sviði varnar- og öryggismála í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum, og hvaða nýju tækifæri opnast þegar öll norrænu löndin eru orðnir aðilar að NATO?
- Hvað þarf Norðurlandaráð einkum að leggja áherslu á að gera meira af til þess að efla öryggi, frið og viðbúnað á Norður-Atlantshafi?
- Hvað þarf til þess að viðhalda lítilli spennu á Norður-Atlantshafi m.t.t. öryggismála?
- Á hvaða sviðum er hægt og á að bæta samstarf í viðbúnaðarmálum á Norður-Atlantshafi?
- Hvaða samstarfsaðilar eru mikilvægir fyrir Norðurlandaráð og norrænu löndin til þess að tryggja lýðræði og frið til frambúðar?
- Hvert á friðarhlutverk norrænu landanna að vera?
- Hvernig verður sem best hlúð að trausti og vináttu á milli norrænu þjóðanna til framtíðar?
- Hvaða áhrif hafa breytingar á norðurslóðum og loftslagsbreytingar almennt á öryggismál og tækifæri á Norður-Atlantshafi?
- Hvernig er hægt að efla hinn þinglega þátt í norrænu varnar- og öryggissamstarfi?
- Er þörf á því að fella samstarf á sviði öryggis-, varnar- og viðbúnaðarmála inn í grundvallarsamning norræns samstarfs, Helsingfors-samninginn, til þess að tryggja að Norðurlönd uppfylli markmið sitt um að verða samþættasta og sjálfbærasta svæði heims?