Tilkynnt um tilnefningarnar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Ljósmyndari
norden.org
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 verða tilkynntar á norden.org þann 27. febrúar kl. 11:00 að íslenskum tíma. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi. Verðlaununum er ætlað að auka áhuga fólks á bókmenntum og tungu nágrannaþjóða sinna og hinu norræna menningarsamfélagi. Verðlaunin verða afhent í lok október.
Upplýsingar
Dagsetning
27.02.2025
Tími
12:00
Gerð
Viðburður
Hlekkur á annan vef
Tengiliður