Fyrirtækjarekstur í Finnlandi
Upplýsingarnar á þessari síðu koma að gagni fyrir þau sem hyggja á fyrirtækjarekstur í Finnlandi. Neðst á síðunni eru upplýsingar fyrir finnska atvinnurekendur sem hyggja á viðskipti við önnur lönd eða vilja færa út kvíarnar til annarra norrænna landa.
Á vefgáttinni Your Europe er hægt að kynna sér nánar þær reglur sem gilda þegar fyrirtæki er stofnað í öðru ESB- eða EES-landi. Enterprise Europe Network er tengslanet aðila sem geta aðstoðað þig í málum sem varða evrópskan markað.
Hvernig getur þú stofnað fyrirtæki í Finnlandi?
Þú finnur haldgóðar upplýsingar um stofnun fyrirtækja á þjónustuvefnum Suomi.fi og á vefnum Yrittäjät.fi. Finnska miðstöðin fyrir ný fyrirtæki, Uusyrityskeskus, veitir líka ráðgjöf án endurgjalds um málefni fyrirtækjarekstrar.
Hvaða skyldum hafa fyrirtæki að gegna í Finnlandi?
Erlent fyrirtæki með starfsemi í Finnlandi þarf að uppfylla ýmsar skyldur, til dæmis er það skattskylt og gegnir ýmsum skyldum sem vinnuveitandi gagnvart starfsfólki sínu. Nánari upplýsingar eru á síðu finnskra skattayfirvalda (Verohallinto).
Vilt þú víkka starfsemi fyrirtækis þíns út til annarra norrænna landa?
Ef þú hefur stofnað fyrirtæki í Finnlandi og vilt færa út kvíarnar til fleiri landa skaltu kynna þér þjónustuvefinn Team Finland. Þar hefur verið safnað saman upplýsingum um alla aðila með fjármögnun frá hinu opinbera sem veita þjónustu á sviði alþjóðavæðingar. Þurfir þú ráð í tengslum við útrás fyrirtækis til annarra landa veitir ráðgjafarþjónusta Business Finland ráðleggingar á ýmsum sviðum málaflokksins í samræmi við þarfir viðskiptavinar og vaxtarstig fyrirtækis.
Landamæraþjónustan á Norðurkollu veitir ráðgjöf þeim fyrirtækjarekendum í Finnlandi sem vilja færa út kvíarnar til Svíþjóðar eða Noregs.
Nánari upplýsingar
Ef þig vantar upplýsingar um stofnun fyrirtækis eða atvinnurekstur í Finnlandi skaltu byrja á að kynna þér þjónustuvefinn Suomi.fi.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.