Grunnskólar á Íslandi

Öllum börnum og unglingum, að jafnaði á aldrinum 6 til 16 ára, er skylt að sækja grunnskóla. Hér má finna almennar upplýsingar um grunnskóla.

Skólaskylda

Skólaskylda á grunnskólastigi er að jafnaði í tíu ár. Skólaárið er að jafnaði níu og hálfur mánuður frá síðustu viku ágústmánaðar til og með fyrstu viku júní. Í öllum skólum er jóla- og páskaleyfi og flestir skólar taka auk þess nokkra daga í vetrarfrí.

Grunnskóli

Þegar barn er skráð í grunnskóla er það gert rafrænt í gegnum það sveitarfélag sem barnið býr í. 

Lögð er áhersla á að allir nemendur fái nám við sitt hæfi í grunnskólanum. Nemendur sem eiga við náms-, félags- eða tilfinningalega erfiðleika og/eða fötlun eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi.

Kennsla í erlendum tungumálum hefst með ensku í fjórða bekk og dönsku í sjöunda bekk. Nemendur með góðan grunn í sænsku eða norsku geta valið þau tungumál í stað dönskunnar með samþykki skólans. Flestir skólar bjóða upp á önnur tungumál sem valfag í 10. bekk.

Móðurmál

Nemendur með annað móðurmál en íslensku eiga rétt á stuðningi og sérkennslu í íslensku. Oft er miðað við tvo tíma á viku. Móttökudeildir fyrir nýbúa eru starfræktar í þremur grunnskólum í Reykjavík.

Skóladagvist

Boðið er upp á skóladagvist eftir að skóladegi lýkur fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Foreldrar greiða fyrir þjónustuna. Flestir skólar bjóða upp á máltíðir í hádegi gegn vægu gjaldi. Heilsugæsla í skólum er veitt án endurgjalds.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um grunnskóla á Íslandi má finna á vefsíðu Mennta- og barnamálaráðuneytis og á vefsíðu þess sveitarfélags sem flytja á til.

Hafa samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.