Kröfur um vegabréf þegar ferðast er til Noregs
Þarftu vegabréf til að ferðast til Noregs?
Einnig eru gefnar upplýsingar um hvaða reglur gilda við mismunandi aðstæður.
Norrænir ríkisborgarar
Norrænir ríkisborgarar geta ferðast til Noregs frá öðrum norrænum löndum án vegabréfs. Við mælum engu að síður með því að hafa með sér vegabréf eða gilt nafnskírteini. Norrænu löndin kunna að viðhafa landamæraeftirlit af og til og aðeins er hægt að nota vegabréf eða nafnskírteini til að staðfesta ríkisfang.
Vegabréfakröfur fyrir börn yngri en 18 ára
Börn sem ferðast með foreldri eða forráðamanni frá öðru norrænu landi þurfa ekki vegabréf. Athugaðu engu að síður hjá flug- eða samgöngufélaginu hvort gildra persónuskilríkja sé krafist fyrir alla farþega. Tilfallandi landamæraeftirlit kann einnig að fara fram og þá þarf að vera hægt að sýna fram á norrænt ríkisfang barnsins (með vegabréfi eða nafnskírteini).
Ef barnið ferðast aleitt eða með öðrum fullorðnum einstaklingum getur landamæraeftirlitið farið fram á skriflegs samþykkis forráðamanns. Barnið þarf að hafa meðferðis:
- Vegabréf eða nafnskírteini
- Yfirlýsingu um samþykki
Ferðir frá löndum utan Norðurlanda
Allir sem ferðast til Noregs frá landi utan Norðurlanda, þar á meðal norrænir ríkisborgarar, þurfa að hafa meðferðir vegabréf eða önnur gild persónuskilríki.
Ríkisborgarar ESB-, EES- og Schengen-landa
Þú þarft að hafa meðferðis vegabréf eða nafnskírteini sem sýnir ríkisfang þitt. Þú getur ferðast til Noregs án vegabréfsáritunar til að dvelja þar í allt að 90 daga.
Ríkisborgarar landa utan Norðurlanda, ESB, EES og Schengen
Þú þarft að hafa gilt vegabréf til að ferðast til Noregs. Vegabréfið þarf yfirleitt að vera í gildi í a.m.k. þrjá mánuði eftir fyrirhugaða brottför frá Schengen. Flestir ferðalangar þurfa einnig vegabréfsáritun. Hægt er að sækja um vegabréfsáritun hjá Utlendingsdirektoratet (UDI).
Vegabréf þegar ferðast er til Svalbarða
Svalbarði er hluti af Noregi en er utan Schengen-svæðisins. Allir sem ferðast til Svalbarða þurfa að hafa meðferðis gild ferðaskilríki. Þetta á bæði við um áhafnir og farþega í einkaflugvélum og skipum, óháð stærð og gerð.
Vegabréf eru tekin gild sem ferðaskilríki fyrir ferðir til Svalbarða. Norræn nafnskírteini og skjöl sem koma fram í 4. viðauka útlendingareglugerðar eru einnig samþykkt.
Þegar ferðast er til Svalbarða þarf að muna eftir þessu:
- Allir þurfa að framvísa gildu vegabréfi/persónuskilríkjum við ferðir þegar þeir ferðast til og frá Svalbarða – einnig norskir og norrænir ríkisborgarar.
- Ekki þarf vegabréfsáritun til að dvelja á Svalbarða.
- Ef þú ferðast í gegnum meginland Noregs og þarft að fá vegabréfsáritun fyrir Schengen-svæðið þarf vegabréfsáritunin að leyfa tvær komur ef þú ætlar að ferðast aftur til meginlandsins eftir heimsóknina.
- Dvöl á Svalbarða gefur ekki rétt til dvalar í Noregi eða öðru Schengen-ríki.
- Flug milli meginlands Noregs og Svalbarða telst vera millilandaflug. Vegabréfaeftirlit er á flugvöllunum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.