Styrkur vegna heimagæslu á Álandseyjum

Á þessari síðu eru gefnar upplýsingar um heimagæslustyrk og þá mismunandi hluta hans sem eru í boði fyrir einstaklinga sem búa í sveitarfélagi á Álandseyjum. Á síðunni má einnig finna upplýsingar um rétt á heimagæslustyrk og umsóknir.

Heimagæslustyrkur er fjárhagslegur styrkur til forráðamanna barns sem ekki er í dagvistun á vegum sveitarfélags, að undanskilinni barnagæslu (lekverksamhet). Forráðamenn geta einnig fengið heimagæslustyrk til að greiða öðrum fyrir að annast barnið.

Finna má upplýsingar um heimagæslustyrkinn og hvernig sótt er um hann á vefsíðum sveitarfélaganna. Nánari upplýsingar um dagvistun barna er að finna á síðu Info Norden um dagvistun barna á Álandseyjum.

Hlutar heimagæslustyrksins

Heimagæslustyrkurinn samanstendur af mismunandi formum styrkja. Auk grunnstyrks, viðbótarstyrks og heimagæslustyrks að hluta til fást t.a.m. heimagæslustyrkur fyrir systkin, grunnstyrkur og viðbótarstyrkur fyrir fjölskyldur fjölbura og ættleiddra barna sem og aðrar viðbætur við grunnstyrkinn.

Nánari upplýsingar um hluta heimagæslustyrksins og viðbætur við hann er að finna í lögum um heimagæslustyrk á vef landsstjórnar Álandseyja, vefsíðum sveitarfélaganna og undir fyrirsögnunum hér að neðan.

Grunnstyrkur vegna heimagæslu

Grunnstyrkur vegna heimagæslu er allt að 500 evrur á mánuði. Stuðningurinn er greiddur út fyrir börn yngri en þriggja ára sem ekki eru í dagvistun á vegum sveitarfélags.

Ef samanlagðar skattskyldar tekjur fjölskyldunnar eru ekki yfir 1050 evrum á mánuði er einnig hægt að fá tekjutengda viðbót. Viðbótarstyrkurinn er veittur í allt að eitt ár í einu og getur einnig verið veittur fyrir heimagæslu systkina.

Viðbótarstyrkur vegna heimagæslu

Grunnstyrkur vegna heimagæslu nemur 700 evrum á mánuði. Styrkurinn er greiddur fyrir barn yngra en þriggja ára sem foreldrar annast sjálfir ef þeir vinna ekki meira en í samanlagt átta mánuði á ári.

Hvor forráðamannanna á rétt á styrkjum í allt að fjóra samfellda mánuði og tímabilin þurfa ekki að vera samfelld. Ef forráðamaður er aðeins einn á hann rétt á allt að átta mánaða samfelldu tímabili.

Styrkur vegna heimagæslu að hluta til

Styrkur vegna heimagæslu að hluta til er ekki veittur ef grunnstyrkur vegna heimagæslu er veittur. Forráðamenn sem vinna að meðaltali í mest 30 klukkustundir á vinnu vegna umönnunar barns síns gætu átt rétt á styrknum. Styrkurinn er 125 evrur á mánuði og fæst greiddur þar til barn nær þriggja ára aldri, fyrstu tvö skólaárin og á skólaárinu áður en skólaganga hefst ef barn á skólaskyldualdri er í leikskóla. Við framlengda skólaskyldu getur styrkurinn einnig fengist greiddur þriðja skólaárið.

Báðir forráðamennirnir eiga rétt á styrk fyrir heimagæslu að hluta til í sama mánuði að því gefnu að þeir séu ekki fjárverandi frá vinnu til að sinna barninu á sama tíma.

Réttur til heimagæslustyrks

Forráðamenn geta sótt um heimagæslustyrk þegar þeir eru í foreldraleyfi og þegar barnið er ekki í dagvistun á vegum sveitarfélags eða opinberlega niðurgreiddri einkarekinni dagvistun, að undanskilinni barnagæslu (lekverksamhet). Réttur til heimagæslustyrks hefst þegar 160 virkir dagar eru liðnir frá fæðingu barns, þegar barnið er um sex mánaða gamalt. Heimagæslustyrkur er greiddur þar til barnið nær þriggja ára aldri, að undanskildum heimagæslustyrk að hluta til, sem getur verið greiddur til barna í 1. og 2. bekk ef foreldrar þeirra hafa styttan vinnutíma. Heimagæslustyrkur er ekki greiddur út á sama tíma og foreldri fær fæðingarorlofsgreiðslur. Undantekningin er heimagæslustyrkur vegna systkina.

Við flutning frá finnska meginlandinu til Álandseyja er barnagæslustyrkurinn sem FPA greiðir felldur niður frá upphafi mánaðarins eftir flutninginn en sækja má um hann að nýju í nýja sveitarfélaginu daginn eftir niðurfellinguna. Ekki er greiddur styrkur fyrir dagvistun hjá einkaaðilum á Álandseyjum.

Sækja um heimagæslustyrk

Sótt er um heimagæslustyrk í gegnum rafræna þjónustu viðkomandi sveitarfélags eða með pappírseyðublaði með fylgigögnum á borð við ákvörðun FPA um tímabil fæðingarorlofsgreiðslna, staðfestingu á skattgreiðslum, skattkort fyrir bætur og fleira. Finna má ítarlegan lista yfir skjöl og gögn sem þurfa að fylgja með umsókn á vefsíðum sveitarfélaganna.

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um heimagæslustyrki í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Hafa samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.