Dagvistun barna á Álandseyjum
Á Álandseyjum er boðið upp á dagvistun barna á dagheimilum, leikskólum og frístundaheimilum. Dagvistun barna felur í sér umönnun, gæslu og menntun barna áður en þau hefja skólagöngu og í tengslum við skóladaginn. Forráðamenn geta sótt um dagvistunarpláss hjá sveitarfélagi hvenær árs sem er og geta einnig valið dagvistun hjá einkaaðila.
Gjald fyrir dagvistun er ákveðið af hverju sveitarfélagi og getur það mest verið 240 evrur fyrir hvert barn í hverjum mánuði. Sveitarfélögin geta einnig ákveðið að hafa gjaldfrjálsa mánuði eða að bjóða upp á gjaldfrjálsa dagvistun. Lesa má nánar um dagvistun varna á vef landsstjórnar Álandseyja.
Leikskólastarf
Í sveitarfélögunum á Álandseyjum fer leikskólastarf fram á leikskólum, fjölskylduleikskólum og hópfjölskylduleikskólum. Leikskólarnir gefa börnum undir skólaaldri færi á að leika sér og fræðast.
Börn eiga rétt á leikskólaplássi frá níu mánaða aldri þar til skólaskylda hefst. Börn eiga ekki rétt á leikskólaplássi á meðan foreldrar þiggja fæðingarorlofsgreiðslur. Ef forráðamenn eru í hlutastarfi og fá fæðingarorlofsgreiðslur að hluta til á barnið þó rétt á plássi.
Starfsemi leikskólanna skal taka mið af bestu hagsmunum barna. Sveitarfélögin eiga eftir þörfum að bjóða upp á leikskóla á kvöldin, að nóttu til og á frídögum fyrir börn sem það þurfa vegna vinnu eða náms forráðamanna.
Forskólakennsla
Árið áður en barn hefur grunnskólagöngu á það rétt á a.m.k. 20 klukkustunda dagvistun með gjaldfrjálsri forskólakennslu í hverri viku. Tilgangur forskólakennslunnar er að styðja við þroska barnsins og undirbúa það fyrir áframhaldandi nám og menntun. Nánari upplýsingar um grunnskóla á Álandseyjum er að finna á síðu Info Norden.
Frístundaheimili
Frístundastarf fyrir grunnskólabörn er hluti af dagvistun barna. Frístundaheimilum er ætlað að stytta þann tíma sem börn eru ein án nærveru einhvers fullorðins fyrir og eftir skóladaginn. Frístundaheimilunum er ætlað að bjóða upp á uppbyggilegt frístundastarf sem og gæslu og umönnun fyrir fyrst og fremst yngri grunnskólabörn á 1. eða 2. námsári ef foreldrar þeirra eru í vinnu, atvinnuleit eða námi. Frístundaheimilin eru rekin af sveitarfélögunum, sem er heimilt að innheimta mánaðargjald. Skráning á frístundaheimili fer fram í því sveitarfélagi sem búið er í.
Nánari upplýsingar um starfsemi frístundaheimila er að finna á vefsvæðinu läroplan.ax.
Barnagæsla
Barnagæslustarfsemi býður börnum sem ekki hafa hafið skólagöngu og sem ekki eru á leikskóla upp á stað til að leika sér á undir eftirliti starfsfólks. Yfirleitt er boðið upp á dagvistun í 10–15 klukkustundir í viku og getur barnagæslan verið rekin af fyrirtæki sveitarfélagi, kirkju eða einkaaðila. Getur hún farið fram á leikvelli eða klúbbi og verið bæði innandyra og utandyra.
Nánari upplýsingar um barnagæslu er að finna á vefsvæðinu läroplan.ax.
Réttur til dagvistunar
Sveitarfélögum er skylt að útvega dagvistun fyrir börn sem hafa skráða búsetu í sveitarfélaginu og einnig börn sem eru búsett í því vegna atvinnu, náms eða sambærilegrar ástæðu forráðamanna. Þetta á einnig við þótt barnið hafi ekki lögheimili í sveitarfélagi á Álandseyjum eða ef það hefur lögheimili í öðru sveitarfélagi.
Lesa má nánar um rétt til dagvistunar í landslögum Álandseyja um dagvistun barna og grunnskóla á vefsvæði landsstjórnar Álandseyja.
Styrkur vegna heimagæslu
Heimagæslustyrkur er fjárhagslegur styrkur til forráðamanna barns sem ekki er í dagvistun á vegum sveitarfélags, að undanskildu tómstundastarfi. Forráðamenn geta einnig fengið heimagæslustyrk til að greiða öðrum fyrir að annast barnið. Nánari upplýsingar fást á síðu Info Norden um heimagæslustyrk á Álandseyjum.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um dagvistun barna í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.