Hagnýtar upplýsingar um þing Norðurlandaráðs 2025

Hér er að finna hagnýtar upplýsingar í tengslum við 77. þing Norðurlandaráðs sem haldið verður í sænska þinghúsinu í Stokkhólmi dagana 27.–30. október 2025.

Vettvangur þingsins

Sænska þinghúsið

Inngangur um Norrbro 1a og 1b, Riksplan

Skráning og upplýsingar

Skráningarborð er við inngang Riksplan í austurhúsi þinghússins (RÖ).

Upplýsingaborð er í vesturhúsi þinghússins í kammarfoajén á fimmtu hæð þegar þingfundur er í gangi.

Skráning er opin:

Sunnudag 17.00–19.00

Mánudag 8.00–19.15

Þriðjudag 7.30–19.30

Miðvikudag 7.30–20.00

Fimmtudag 7.30–16.00

Öryggisleit

Í hvert sinn sem gengið er inn í þinghúsið skulu þátttakendur á þinginu sína gild skilríki og nafnspjald eftir að það hefur verið móttekið. Öryggisleit er skilyrði í hvert sinn sem gengið er inn í þinghúsið. Af öryggisástæðum skal ávallt bera nafnspjald og hafa sýnilegt á meðan á þinginu stendur.

Símanúmer

Skiptiborð sænska þingsins: +46 (0)8 786 40 00   

Leigubílar

Taxi Stockholm                                                     tel. +46 (0)8 15 00 00

Taxi 020                                                                tel. +46 (0)8 20 20 20

Taxikurir                                                                tel. +46 (0)8 30 00 00

Taktu þátt í að vekja athygli á Norðurlöndum!

Á þessari síðu má finna rásir Norðurlandaráðs, ábendingar og efni til að miðla um þing Norðurlandaráðs 2025.