Taktu þátt í að vekja athygli á Norðurlöndum!

Á þessari síðu má finna rásir Norðurlandaráðs, ábendingar og efni til að miðla um þing Norðurlandaráðs.

Þingin eru mikilvægur fundarvettvangur norræns samstarfs. Sem þingmaður í Norðurlandaráði ertu sendiherra fyrir samfélag okkar, bæði í umræðum og á samfélagsmiðlum.

Hér færðu hagnýt ráð um hvernig þið sem þingmenn getið notað samfélagsmiðla á áhrifaríkan hátt. Markmiðið er að gera norrænt samstarf sýnilegt og miðla upplýsingum um það sem er að gerast á þingunum. Í stuttu máli:

  1. Fylgdu Norðurlandaráði á samfélagsmiðlum og hjálpaðu okkur að dreifa upplýsingum um norrænt samstarf.
  2. Taktu þátt, deildu færslum okkar og vertu með í umræðum.
  3. Náðu í myndir úr myndabankanum okkar og notaðu þær í þínum eigin færslum.

Hagnýtar leiðbeiningar

Birting mynda af viðburðinum er frábær leið til að vekja athygli og skapa áhuga. Myndir frá fundum, umræðum eða samverustund með öðrum þinggestum virka persónulegar. Í stuttu máli:

  1. Birtu endilega myndir frá umræðum, fundum og viðburðum.
  2. Deildu opinberum færslum og fréttum Norðurlandaráðs til þess að auka útbreiðslu þeirra.
  3. Merktu samfélagsmiðla Norðurlandaráðs í færslum þínum til að auka útbreiðslu þeirra.

Opinber myllumerki

Notaðu alltaf opinber myllumerki (hashtags) til að tryggja samræmda ásýnd og ná meiri útbreiðslu.

#nrsession

#nrpol

#nordiskarådet

Hugmyndir

Hugleiðingar um yfirstandandi umræður á dagskrá þingsins

  • Hugleiðingar þínar um það sem rætt er á þinginu og efnið Samstíga Norðurlönd – norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum.

Málefni sem eru efst á baugi í nefndunum

  • Þú getur bent á umfjöllunarefni nefndanna sem þú telur sérstaklega mikilvæg.

Myndir frá fundum og með öðrum þinggestum

  • Birtu myndir frá fundum eða samverustund með öðrum þinggestum.

Stutt myndskeið

  • Stutt myndskeið (30 sekúndur að hámarki) virka best á samfélagsmiðlum og vekja strax athygli.

Merktu Norðurlandaráð

  • Mundu að merkja samfélagsmiðla Norðurlandaráðs til að auka dreifingu og sýnileika færslu þinnar.

Vefsíða þingsins

Á vefsíðu þingsins eru hagnýtar upplýsingar, fréttir, streymi og dagskrá þingsins. https://www.norden.org/sv/nordiska-radets-temasession-2026

Segðu frá upplifun þinni

Sem sendiherra fyrir Norðurlandaráð skaltu endilega birta þínar myndir og myndskeið frá þinginu á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum. Atvinnuljósmyndarar munu einnig taka myndir meðan á þinginu stendur og þær má nota án endurgjalds (ekki í atvinnuskyni) að því gefnu að ljósmyndarans sé getið (NN/norden.org).

Hægt verður að nálgast myndir á slóðinni: https://public.skyfish.com/p/nordisksamarbejde/2661360 

Tengiliðir

Upplýsinga- og fjölmiðlafulltrúi: Jakob Colville-Ebeling, +45 61 656 195, jacoeb@norden.org

Samskiptaráðgjafi: Miriam Andrea Fottland, +45 27 10 94 32,  mirfot@norden.org

Tengiliður vegna ljósmynda: Ida-Lina Strang, +45 60 39 71 95,  idanyh@norden.org

Spurningar um myndatöku og meðhöndlun mynda

Spurningum um myndatöku eða upphleðslu mynda skal beint til:

Ida-Lina Strang idanyh@norden.org + 45 60 39 71 95 (SMS hentar best).