Kort af Norðurlöndum

Ljósmyndari
Nordregio
Á þessari síðu er að finna upplýsingar um norræn kort sem Norræna rannsóknastofnunin í skipulags- og byggðamálum (Nordregio) hefur gefið út. Starfsfólk hennar á sviði landupplýsingakerfa vinnur kort sem tengja saman gögn, landafræði og stefnumótandi spurningar.

Kortin hvernig staðir virka, breytast og tengjast á Norðurlöndum, þökk sé svæðisgreiningu, samræmdum gögnum og nákvæmri hönnun kortanna.

Markmiðið er að gefa rannsakendum, ráðamönnum og almenningi skýra innsýn í flóknar upplýsingar. Vegna gagnsærra vinnuaðferða og samræmdrar flokkunar er hægt að gefa áreiðanlegan samanburð og sýna mynstur og tengsl milli svæða.

Norðurlönd

Hér er kort af Norðurlöndum sem sýnir landamæri, svæðisbundin mörk og mörk sveitarfélaga. Að neðan má einnig finna nokkur dæmi um hvernig Nordregio notar kort til að greina og skýra frá þróun á svæðinu.

Ljósmyndari
Nordregio

Öll kort Nordregio eru aðgengileg á netinu og þau skiptast í þrettán rannsóknarflokka. Sía má þau eftir landsvæði og ári til að auðvelda skoðun og samanburð. Nota má kort Nordregio án endurgjalds að því gefnu að lógó Nordregio sé greinilegt og að upprunans sé getið. Getið einnig kortagerðarmanns, hönnuðar eða höfundar og vísið í alla gagnagjafa sem koma fram á myndinni.