Norrænt fréttabréf um ESB og vinnurétt

Fréttabréfið ESB og vinnuréttur fjallar um álitaefni, mál og dóma á sviði vinnuréttar innan ESB sem eru mikilvæg fyrir Norðurlöndin.

Fréttabréfið kemur út fjórum sinnum á ári með það að markmiði að miðla þekkingu um vinnuréttarleg álitaefni sem skipta Norðurlöndin máli. Fréttabréfið eykur aðgengi að viðeigandi upplýsingum á þessu sviði og leggur grunn að umræðu um samspil vinnuréttar og vinnumarkaðslíkana Norðurlanda annars vegar og reglna og stefnu ESB hins vegar.

 

Hver er útgefandi fréttabréfsins?

Það er stofnunin um félagslegan einkamálarétt við lagadeild Stokkhólmsháskóla sem gefur fréttabréfið út í samstarfi við þrettán aðrar norrænar menntastofnanir: Lagadeild Copenhagen Business School, deild reikningsskila og viðskiptalögfræði við Sænska verslunarháskólann í Helsinki, lagadeild Háskólans í Helsinki, Fafo Institutt for arbeidslivs- og velferdsforskning, einkamálaréttarstofnun Háskólans í Osló, WELMA við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla, lagadeild Háskólans í Lundi, lagadeild Háskólans í Umeå, lagadeild Uppsalaháskóla, réttarvísindastofnun við Handelshøyskolen BI, Juridisk institut, Aarhus BSS við Árósaháskóla, UEF Law School við Háskólann Austur-Finnlands og lagastofnun Syddansk Universitet.

 

Stuðningur frá Norrænu ráðherranefndinni

Fréttabréfið fær fjárstyrk frá Norrænu ráðherranefndinni og er í samstarfi við netmiðil ráðherranefndarinnar, Arbeidsliv i Norden.