Norræna veftímaritið Arbeidsliv i Norden

Arbeidsliv i Norden - juni 2010
Ljósmyndari
Tomas Bertelsen
Arbeidsliv i Norden er norrænt veftímarit sem fjallar um málefni atvinnulífsins í norrænu samhengi með áherslu á vinnumarkað, vinnuumhverfi og vinnurétt.

Arbejdsliv i Norden birtir greinar, greiningar og skýrslur eftir blaðamenn frá öllum norrænu löndunum. Veftímaritið fylgist með þróun atvinnulífsins í norrænu löndunum og varpar ljósi á það hvernig samstarfið á Norðurlöndum, sambandið við ESB og alþjóðlegir aðilar á borð við Alþjóðavinnumarkaðsstofnunina (ILO) og OECD hafa áhrif á vinnumarkaðinn og norrænu vinnumarkaðslíkönin.

Tímaritið leggur sérstaka áherslu á að skoða hvernig samfélagslegar áskoranir á borð við stafvæðingu, nýja tækni, hnattvæðingu, lýðfræðiþróun samfélagsmiðla breyta skilyrðum á vinnumarkaði og gera nýjar kröfur til stofnana, vinnuveitenda, aðila vinnumarkaðarins og starfsmanna.

Útgefandi og ritstjórn

Arbejdsliv i Norden er gefið út af Arbeidsforskningsinstituttet ved OsloMet að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar. Ritstjórnin vinnur með víðu neti blaðamanna og rannsakenda frá öllum norrænu löndunum, að meðtöldum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Aðalritstjóri er Line Scheistrøen og á veftímaritið í nánu samstarfi við EU & arbejdsret um málefni sem tengjast vinnurétti og evrópskri vinnumálastefnu.