Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar til menningar og lista

Norræna ráðherranefndin fjármagnar fjölbreytt úrval styrkja til að efla listir og menningu á Norðurlöndum. Umsjón með styrkjunum hafa samstarfsaðilar og stofnanir Norrænu ráðherranefndarinnar.

Norræna menningargáttin

Verkefni Norrænu menningargáttarinnar er að efla norrænt menningarsamstarf fyrir börn og ungmenni og í borgarasamfélaginu. Í boði eru styrkir, meðal annars til menningar- og listaverkefna á Norðurlöndum, samstarfs norrænna barna og ungmenna um samfélags- og menningarleg verkefni, eflingar á þekkingu barna og ungmenna á norrænum tungumálum og menningu og samstarfs og tengslaneta aðila borgarasamfélagsins á Norðurlöndum. 

Norræn-baltneska ferðaáætlunin

Hlutverk Norræn-baltnesku ferðaáætlunarinnar er að efla samstarf, þekkingarmiðlun og samstarfsnet listafólks og aðila í menningarlífi á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Sjóðurinn býður styrki vegna listamannadvala, ferðastyrki og styrki til samstarfsverkefna og tengslaneta.  Norræna menningargáttin hefur umsjón með áætluninni.

Norræni menningarsjóðurinn

Hlutverk Norræna menningarsjóðsins er að efla menningarsamstarf milli norrænu landanna sem og Norðurlanda við önnur lönd heim. Sjóðurinn veitir meðal annars styrki til rannsóknarferða, þróunar tengslaneta og faglegrar ráðgjafar, sem og verkefnastyrki til þróunar og stækkunar lista- og menningarverkefna á Norðurlöndum og alþjóðlega.  

Norræna stofnunin á Grænlandi (NAPA)

Norræna stofnunin á Grænlandi vinnur að eflingu norrænna lista og menningar á Grænlandi. Stofnunin hefur umsjón með styrkjum til lista- og menningarverkefna á Norðurlöndum sem eiga erindi til Grænlendinga.

Samaráðið

Samaráðið er stofnun sem vinnur að því að efla og gæta hagsmuna Sama þvert á landamæri. Samaráðið hefur umsjón með styrkjum til eflingar og þróunar samískrar menningar á Norðurlöndum. 

Samisk Kunstnerråd

Samisk Kunstnerråd vinnur að eflingu hagsmuna hinna sex aðildarsamtaka sinna á sviði menningar. Ráðið hefur umsjón með styrkjum fyrir samískt listafólk og stofnanir vegna samstarfsverkefna á Norðurlöndum.

Tengiliður