Upplýsingar til blaðamanna um þing Norðurlandaráðs 2025 í Stokkhólmi
Skráning
Blaðamenn sem vilja fylgjast með þinginu á staðnum verða að skrá sig sem blaðamenn inn í sænska þinghúsið.
Til þess að vera öruggur um skráningu þarf að senda umsókn fyrir 17. október. Unnið er úr umsóknum sem berast eftir að fresturinn er liðinn jafnóðum.
Myndir frá þinginu
Myndum frá þinginu verður hlaðið jafnóðum upp í norrænan myndabanka okkar:
Viðburðir á vegum stjórnarráðsins
Athugið að skráning inn í sænska þinghúsið gildir ekki á blaðamannafund í stjórnarráðinu.
Stjórnarráðið stendur fyrir sínum eigin viðburðum í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Hér má nálgast upplýsingar um viðburði á vegum stjórnarráðsins, þ. á m. blaðamannafund með norrænum forsætisráðherrum og ríkisstjórnarleiðtogum:
Afhending verðlauna Norðurlandaráðs
Blaðamenn sem þegar eru skráðir inn í sænska þinghúsið og hafa áhuga á að fjalla um verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs, sem fram fer í stjórnarráðinu þriðjudaginn 28. október kl. 18–19, þurfa að senda tölvupóst á netfangið press@riksdagen.se í síðasta lagi þann 22. október 2025.
Fjöldi sæta er takmarkaður. Leitast verður eftir að skapa fréttahóp norræns fjölmiðlafólks sem getur verið á staðnum og fylgst með afhendingunni. Athöfnin verður í beinni útsendingu á vefnum og verður hægt að fylgjast með henni á heimasíðum sænska þingsins og Norðurlandaráðs, þar sem fréttamyndir verða jafnframt birtar.
Samskiptaupplýsingar
Ertu með spurningar eða viltu bóka viðtal við þingmenn Norðurlandaráðs eða verðlaunahafa Norðurlandaráðs? Hafðu samband við fjölmiðlafulltrúa Norðurlandaráðs:
André H. Jamholt,
fjölmiðlafulltrúi á skrifstofu Norðurlandaráðs,
+45 603 942 32
andjam@norden.org
Samband við fjölmiðladeild sænska þingsins:
+46 8 786 62 00
press@riksdagen.se