Anna Fiske
„Minni en kirsuber en stærra en hrísgrjón.“ Þannig hefst þessi hlýja og tímalausa frásögn Önnu Fiske um Lille løve („Litla ljón“, hefur ekki komið út á íslensku). Litla ljón er pínulítið leikfang sem er haldið á milli þumals og vísifingurs á fyrstu opnu bókarinnar, eins og litlum fjársjóði. Þótt ljónið sé lítið eru tilfinningarnar gríðarmiklar: Aðalpersónan elskar Litla ljón.
Mamma varar barnið við því að taka ljónið með sér út í hinn stóra heim: „Mamma segir að það sé heimskulegt að elska eitthvað sem er svona lítið. Að litlir hlutir geti horfið og þá verði grátur og gnístran tanna.“ En Litla ljón kemur samt með í leikskólann, falið inni í vettlingi eins og lítið leyndarmál. Svo gerist hið óhjákvæmilega: Litla ljón hverfur. Ekki einu sinni heldur tvisvar. Hörmungarnar verða staðreynd.
Frásögnin fjallar um ákafa ást, missi – og minningarnar sem verða eftir. Litla ljón er teiknað þannig að ung börn bera auðveldlega kennsl á það. Vaxlitir með tærum og skýrum tónum birta okkur leikfangið í ýmsu ytra og innra samhengi. Við sjáum ljónið stöðugt í nýjum rýmum: í vasa, í húsinu þar sem það býr í hjartanu, í völundarhúsinu þar sem það hvarf. Ferningar og hringir skapa sjónrænan rauðan þráð og skipt er á milli stórra opna og síða með myndasögurömmum. Fiske sýnir okkur alla sína breidd sem listamaður, þar sem myndrænt, gáskafullt og skynrænt myndmál dregur upp hressandi heild.
Áhugaverð nálgun er fólgin í því að við fáum í raun aldrei að sjá aðalpersónuna. Við sjáum hönd, litlar fígúrur í landslagi, en ekkert andlit og ekkert nafn. Ljónið litla er miðpunktur frásagnarinnar. Einmitt þess vegna virðist hið innra líf barnsins svo nálægt.
Eins og í mörgum af fyrri verkum Fiske er hér byggð brú milli heima barna og fullorðinna. Fyrir fullorðinn lesanda er nærtækt að leita í minningar úr eigin bernsku: alltumlykjandi ást í garð tuskudýrs, eða þá tilfinningu að eiga leyndarmál sem maður geymir í blautum vettling á leið í leikskólann.
Að lokum er Litla ljón endanlega horfið. En hvar er það þá? Kannski að upplifa ný ævintýri. Endalok bókarinnar eru opin og bjóða upp á áframhaldandi vangaveltur – og það að lifa áfram í minningunum.
Anna Fiske (f. 1964) er rithöfundur, myndhöfundur og myndasöguhöfundur. Hún hefur skrifað og myndlýst hátt í 70 myndabækur og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Einnig hafa verk hennar verið þýdd á fjölda tungumála.