Annisette Koppel

Ljósmyndari
Jacob Dinesen
Annisette Koppel hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Söngkonan og lagahöfundurinn Annisette Koppel (f. 1948) er sannkallaður frumkraftur í bókstaflegri merkingu þess orðs. Í bernsku dvaldi Koppel löngum stundum úti í náttúrunni og upplifði það sterkt gegnum hróp og söng hvernig rödd hennar gat flogið af stað og fangað frelsið. Síðan þá hefur hún snert við og tengst gríðarstórum hópi áheyrenda með sínum óvenjulega söngstíl. Einstæð rödd Annisette Koppel ratar beint inn í taugakerfi þeirra sem á hlýða og hvað eftir annað hafa hlustendur kveðið upp úr með að hún eigi engan sinn líka. 

Í heilan mannsaldur hefur hún vakið athygli fyrir tónlistarflutning, einkum með sveitinni Savage Rose sem hún hefur haldið áfram með eftir að eiginmaður hennar, tónskáldið og tónlistarmaðurinn Thomas Koppel, féll frá árið 2006. Annisette Koppel er frumkvöðull sem gerir aldrei málamiðlanir, hvikar hvergi frá trú sinni á réttlæti og frið í heiminum og skeytir engu um álit fjölmiðla eða plötufyrirtækja, sem hefur haft töluverðar afleiðingar fyrir feril hennar. Um leið staðfestir þetta ótvíræð heilindi hennar sem listamanns. Árið 2025 nýtur hún enn mikilla vinsælda og uppselt er á tónleika hennar.