Arne Lygre

Ljósmyndari
Tine Poppe
Arne Lygre: I vårt sted, leikrit, Aschehoug forlag, 2024. Tilnefnt til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

I vårt sted („Í okkar stað“) er leikrit um vináttu þriggja einmana einstaklinga sem hafa hver um sig ólíka og einstaka reynslu að baki. Við kynnumst þremur konum: Astrid, Söru og Evu. Tvær kvennanna hafa þekkst lengi. Önnur þeirra hefur haldið sig til hlés í dálítinn tíma og á meðan hefur ný vinkona komið til sögunnar og er á góðri leið með að taka hennar sess. Eftir því sem leikritinu vindur fram verða breytingar á valdajafnvægi milli kvennanna þriggja. Við fylgjumst með því hvernig tilviljanakenndir fundir fléttast saman, knúnir áfram af lönguninni til að forðast einsemd en einnig af minningum um gamlan missi, af óttanum við það að glata annarri manneskju eða að einhver komi í manns stað, og af metingi og öfundsýki. 

 

Konurnar velta fyrir sér eigin aldri; tíminn kemst á hreyfingu og er settur fram sem lífsreynsla og sem væntingar til framtíðarinnar, og sem sú snarpa upplifun sem felst í því að vera á tilteknum stað í lífinu, hér og nú. Þetta ástand er í grunninn býsna vel þekkt og hversdagslegt og textinn virðist einfaldur á yfirborðinu, en er um leið stílíseraður og leikrænn – hann sýnir það með skýrum en lágstemmdum hætti hve erfitt getur verið að ná til annars fólks. Persónurnar virðast bragða á eigin orðum og furða sig á þeim, eða þá að þær tala í kross og krefjast vináttu sem er kannski brothættari en þær vilja viðurkenna. Það eykur enn á tilfinninguna fyrir margröddun að allar konurnar þrjár leika tvö hlutverk og flæða yfir í föður, bróður og son; ein þeirra leikur til dæmis föður sinn á fjölmörgum síðum auk þess að vera hún sjálf. 

 

I vårt sted er rannsókn á möguleikum fólks til samheldni í gegnum ólík aldursskeið og kringumstæður í lífinu, og á því sem ákvarðar og stýrir tengslum okkar við annað fólk. Lygre sýnir það svo ekki verður um villst að við getum aldrei séð okkur sjálf á þann hátt sem aðrir sjá okkur. Það að öll atburðarásin skuli birtast í gegnum samtöl persónanna, án sviðsleiðbeininga eða viðbótartexta, undirstrikar að þetta er tilvistarlegt leikrit um það að vera manneskja, ofurseld heiminum. 

 

Með þessu verki sýnir Lygre enn einu sinni að hann er ekki aðeins mikilhæfur sviðslistamaður heldur einnig framúrskarandi rithöfundur sem á skilið að vera lesinn.

 

Arne Lygre hefur skrifað skáldsögur, smásögur og leikrit en hefur einkum gert sig gildandi sem leikskáld undanfarin ár. Verk hans hafa verið sett á svið um allan heim og frá árinu 1996 hefur hann skrifað 13 leikverk sem hafa verið þýdd á 20 tungumál. Hann hefur hlotið bæði Ibsenverðlaunin og Hedduverðlaunin fyrir leikrit sín.