Askel Aden
KH Misha („K.kv. Misha“, hefur ekki komið út á íslensku) er frásögn um það að finna sína eigin leið, bæði í samböndum við fólk og í lífinu – og ekki síst í hinum undursamlega og að öllu leyti annars konar alheimi sem Misha og mamma háns lenda í þegar bíltúr á mörgum ólíkum plönum færir þau á einstæða braut, út í heim þar sem allt hið ómögulega verður skyndilega mögulegt og þau geta opnað á sameiginlega frásögn.
Misha hefur aldrei búið með mömmu sinni og nú ætla þau í ferðalag, hafa það huggulegt saman og verða nánari. Samband þeirra er þrungið óorðuðum væntingum sem báðir aðilar eiga mjög erfitt með að ræða. Móðirin er spennt og talar um „mæðgnaferð“, en Misha er kynsegin og finnst móðirin hvorki sjá sig né skilja. Meðan á ferðinni stendur skrifar Misha bréf í tilraun til að koma orðum að tilfinningum sínum, en þorir svo ekki að láta mömmu sína fá það. Ferðalagið fer fljótlega út af sporinu, bæði í yfirfærðri og bókstaflegri merkingu, þegar þau velja minnst troðnu leiðina og eru skyndilega komin í Ríki andanna. Þar hitta þau fyrir aðra týnda ferðalanga, villtar verur og sorgleg, einmanaleg örlög og þurfa að standast sígildan fjölda áskorana og prófrauna til að finna leið sem bæði geta fetað. Gjáin á milli þeirra fer vaxandi og lokauppgjör er óumflýjanlegt áður en þau geta nálgast hvort annað hægt og rólega, með mun meiri skilningi á því að vera það sem þau vilja sjálf.
Samtölin eru einföld og blátt áfram. Myndirnar eru bornar uppi af frumlegu handverki sem styður við framtíðarsýn sögunnar. Í myndunum er sérstakt lag fyrir hinn svokallaða raunveruleika í gulleitum, nánast fölum blæbrigðum, og annar heimur opnast í bláum og fjólubláum tónum. Þannig eru þræðir dregnir fram og til baka á milli tvenns konar viðhorfa til lífsins, sem mætast í lokahluta frásagnarinnar er einkennist af hlýjum, rauðbrúnum litum sem opna sig fyrir lesandanum. Þótt ekki fáist lausn við öllum vandamálum eru Misha og mamma háns að nálgast annað sjónarhorn á sig sjálf og hvort annað. Samband þeirra hefur breyst.
KH Misha er tvímælalaust metnaðarfullt verk með alla burði til að slá í gegn utan heimalandsins. Margir lesendur ættu að kannast við þrá Misha eftir viðurkenningu, en einnig við söknuð móðurinnar eftir barninu sem hún hefur ekki búið með og vill ekki hafa sem ókunnuga manneskju í lífi sínu. Þessir tveir heimar mætast, renna saman og skapa nýjan grundvöll til að nálgast sjálf sig og aðra af forvitni og virðingu, svo að úr verður hjartnæm frásögn um þá merkingu sem tengsl milli fólks geta haft, með góðu jafnt sem illu, hvort sem um er að ræða blóðtengsl eða ekki. Þetta er frásögn af manneskju innan um aðrar manneskjur, sem upplifir hugrekki til og mótstöðu gegn því að elska og vera elskuð.
Myndasögum hefur vaxið fiskur um hrygg í Danmörku á undanförnum árum. Askel Aden hefur skapað frásögn sem þorir að hrista upp í gömlum heimsmyndum og rýma til fyrir nýjum. Það er ekki aðeins í samhengi hinseginleika sem þarf að taka til í gamalgrónum hugmyndum. Það á við um allan heiminn. Fyrir það á höfundurinn þakkir skildar.
Askel Aden nam við deildina Graphic Storytelling í The Animation Workshop í Viborg, sló í gegn 17 ára með vefmyndasögunni Crossroads og gaf út sitt fyrsta verk, þríleikinn Åndevandrer, árið 2022.