Bergrún Snæbjörnsdóttir

Ljósmyndari
Camille Blake
Tónskáldið Bergrún Snæbjörnsdóttir hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Intraloper (2026).

Bergrún Snæbjörnsdóttir er tónskáld og fjölfaglegur listamaður sem blandar saman sígildri samtímatónlist, tilraunakenndri raftónlist og þáttum úr sviðslistum í verkum sínum. Stíll hennar er stilltur en ákafur og áhersla er lögð á gagntakandi hlustunarrými og nákvæma hljóðmyndun.  

Bergrún spilar á horn (og var ein þeirra málmblásara sem fylgdu Björk á tónleikaferðalagi árið 2007), er með meistaragráðu í tónsmíðum frá Mills College og einnig menntuð í hljóðlist. Hljómsveitir og tónlistarhátíðir á heimsmælikvarða hafa pantað verk hjá henni.  

Intraloper (2026) var frumflutt á Myrkum músíkdögum af Bergrúnu sjálfri og hinum virta þýska málmblásarakvartett Apparat og þar kom skýrt í ljós hve fær hún er í stemningsríkum hljóðmyndum og fágaðri tónstýringu. Við flutninginn var viðkvæmum og ískyggilegum hljóðheimi fléttað saman við lágstemmd og breytileg mótíf svo að úr varð náið en nístandi verk sem minnti dálítið á hljóðláta hávaðalist. Hárnákvæm blæbrigði í hljóðstyrk og mikil næmni fyrir rýminu hrifu áheyrendur með sér í heillandi ferðalag þar sem heildaráhrifin voru viðkvæm og róleg en jafnframt spennt og áleitin. Þetta vandlega mótaða verk hefur fest Bergrúnu í sessi sem eina merkustu röddina á sviði íslenskrar framúrstefnu.