El Perro del Mar
Sarah Assbring (f. 1977) hefur sent frá sér tónlist undir listamannsnafninnu El Perro del Mar síðan 2004. Sem lagahöfundur er hún mínímalisti sem dáleiðir hlustandann með lágstemmdum en titrandi dramatískum endurtekningum. Hún er alvörugefinn fagurkeri, eirðarlaus svifhugi. Mörg af lögum hennar minna á bænir eða særingarþulur.
Frá upphafi ferilsins hefur hún smám saman fínpússað höfundareinkenni sín og aldrei hikað við að prófa nýja hluti – frá angurværu og hráu indípoppi í anda stúlknahljómsveita, tilfinningaþrungnum orgelsálmum, taktfastri klúbbatónlist, austurasískum blásturs- og strengjahljóðfærum og tónsmíðum fyrir sviðslistaverk og söfn, allt til nýju plötunnar Big Anonymous (2024). Platan er hugleiðslukennd og vekur hlustandann til umhugsunar um hverfulleika lífsins og óumflýjanleika dauðans. Lögin búa yfir fjaðurléttum og marglaga hljómum og hljóðum sem fléttast þægilega saman við djarfa texta.
Eftir 20 ára feril er El Perro del Mar nú beittari en nokkru sinni fyrr.