Eli Tausen á Lava

Ljósmyndari
Gwenaël Akira Helmsdal Carré
Tónskáldið Eli Tausen á Lava hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Let me Cry.

Verkið Let me Cry eftir tónskáldið Eli Tausen á Lava er byggt á fyrstu átta töktunum í hinni frægu aríu Lascia ch'io pianga („Leyfðu mér að gráta“) eftir G.F. Händel. Laglínan kemur æ greinilegar fram eftir því sem líður á verkið. Hljóðfærasetning, tímasetningar og form verksins eru afar skýr. Stefið er í stöðugri þróun allan tímann, verður marglaga og myndar hinn melódíska og hljómræna ramma verksins.  

Verkið hefur einnig hlotið alþjóðlega viðurkenningu. BBC Scottish National Orchestra valdi það til flutnings á Nordic Music Days í Glasgow árið 2024. Let me cry hefur einnig verið valið sem framlag Færeyja á ISCM World Music Days sem fer fram í Búkarest í maí á þessu ári. 

Verkið var frumflutt árið 2022 af Sinfóníuhljómsveit Helsingjaborgar. Það verður einnig flutt af Sinfóníuhljómsveit Færeyja á árinu 2026.