Elin á Rógvi og Silja Eystberg

Ljósmyndari
Tróndur Dalsgarð & Silja Eystberg
Elin á Rógvi og Silja Eystberg (myndhöf.): Fornt, Bókadeild Føroya Lærarafelags , barnabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Aðalpersónur Fornt eru hinn 11 ára Eiri og Sólja vinkona hans. Þau spila vinsæla tölvuleikinn „Fornt“, sem á sér stað í sýndarheimi þar sem hægt er að eltast við og fylgjast með verum úr færeyskum þjóðsögum. Þegar krakkarnir uppgötva nýja, áður óþekkta veru í leiknum fara bestu leikmenn heimsins skyndilega að veita þeim athygli. En ekki er allt sem sýnist og mörkin milli sýndarheims leiksins og raunheimsins verða smám saman óljós. Sagan verður að taugatrekkjandi ráðgátu þar sem fornar þjóðsögur og nútímatækni renna saman á óvæntan hátt. 

Sérstaða Fornt felst í hæfileikum höfundarins til að miðla því hve fyrirferðarmiklir tölvuleikir eru á tækniöld nútímans, og nýta um leið færeyskan menningararf. Bókin gefur lesandanum einstaka innsýn í ævintýraverur á borð við huldufólk, nykra og marbendla og fjallar um leið um vináttu, sjálfsmyndir og þá tækni sem börn og ungmenni lifa og hrærast í í dag. Í Fornt græða leikmenn á þekkingu sinni á hefðum, þjóðsögum og landafræði Færeyja – því meira sem þeir vita, því meira forskot hafa þeir í leiknum. Þetta gerir bókina að heillandi brú milli menningararfsins og tölvuleikja nútímans þar sem þjóðsögur verða virkur þáttur í upplifuninni af tölvuleiknum. 

Með Fornt hefur Elin á Rógvi skapað heillandi og nýstárlega frásögn sem sameinar tölvuleiki, þjóðsögur og vináttu. Um leið hefur bókin ótvírætt gildi fyrir fullorðna lesendur þar sem hún veitir innsýn í hinn stafræna heim ungmenna, tengingu þeirra við netsamfélög og það hvernig vinátta getur kviknað og þróast í sýndarheimum. 

Elin á Rógvi tekst að skrifa sig inn í veröld ungmenna með lifandi og leikandi léttum hætti og samtöl persónanna eru trúverðug. Uppbygging skáldsögunnar og stíll mynda frásögn sem heillar bæði reyndari og óreyndari lesendur. Að auki hefur Silja Eystberg myndlýst bókina með grípandi hætti en myndir hennar í tölvuleikjastíl auka enn á tilfinningu lesandans fyrir þeim stafræna heimi sem bókin miðlar. Myndirnar eru á víð og dreif um bókina, sýna Eiri og þjóðsagnaverur og lýsa netsamskiptum og inngangi tölvuleiksins, sem gerir lestrarupplifunina enn dýpri en ella. 

Með Fornt heldur Elin á Rógvi áfram að leggja sitt af mörkum til norrænna barnabókmennta en hún hefur hlotið barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins fyrir bókina Flytifuglar.