Emilíana Torrini
Fyrsta breiðskífa Emilíönu Torrini á alþjóðlegum vettvangi, poppplatan Love in the Time of Science (1999) sem er í senn epísk og dramatísk perla, kom henni á kortið sem stórstjörnu. Emilíana er söngkona með mikla persónutöfra sem hefur haldið sínum sessi í heimi alþjóðlegrar popptónlistar án þess að gefa nokkurn afslátt af listrænum heilindum.
Upp úr aldamótunum sýndi Emilíana hversu fjölhæf hún er með flutningi sínum á „Gollum‘s Song“ í þríleiknum um Hringadróttinssögu. Einnig samdi hún lagið „Slow“ ásamt Dan Carey en það sló í gegn í flutningi Kylie Minogue á plötunni Body Language. Platan Fisherman's Woman frá 2005 hlaut mikið lof gagnrýnenda og hið grípandi lag „Jungle Drum“ (af plötunni Me and Armini, 2008) tróndi á toppi þýsku vinsældalistanna í heilar átta vikur.
Emilíana hefur ávallt sótt í verkefni sem liggja þvert á mörk tónlistargreina og hefur meðal annars átt í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, belgísku sveitina The Colorist Orchestra og hljómsveitina GusGus. Á síðasta ári gaf hún út sólóplötuna Miss Flower sem inniheldur djarft og metnaðarfullt tilraunapopp. Platan var samin undir áhrifum bréfa sem rituð voru til Geraldine nokkurrar Flower og á henni fjallar Emilíana um sjálfsmynd og valdeflingu með áhrifamiklum hætti.
Emilíana Torrini var einnig tilnefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2017.