Guldimund

Ljósmyndari
Laura Bisgaard Krogh
Guldimund hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Jeg venter i lyset.

Tónskáldið, söngvarinn og lagahöfundurinn Asger Nordtorp Pedersen, sem notar listamannsnafnið Guldimund, hefur á skömmum tíma orðið ein ástsælasta og mest áberandi röddin í dönsku tónlistarlífi.

Hann vakti fyrst athygli árið 2021 með plötunni Dem vi plejede at være og fylgdi henni eftir 2023 með Jeg venter i lyset („Ég bíð í ljósinu“), sem leiddi til uppseldra tónleikaferðalaga og kom tónlistarmanninum í toppsæti spilunarlista.

Af óttalausri einlægni, heillandi og lagrænum heimi flókinna útsetninga og frumlegra hljóðmynda, fangar hann athygli hlustandans og kemur óhefðbundnum popplögum inn í veröld meginstraumsins. Tónlist hans heillar og snertir – ekki síst gegnum tungumálið og viðfangsefni söngtextanna, sem spanna allt frá viðkvæmri ástarsögu til merkingarþrungins fundar fjölskyldu í dómsal. Tónsmíðarnar sameina einkenni ýmissa tónlistargreina, svo sem úr þjóðlagatónlist, djassi, indípoppi og kirkjutónlist, og Guldimund ögrar viðteknum hugmyndum um form popptónlistar með takti sem skapaður er af sígildum strokhljóðfærum auk þátta úr raftónlist. Röddun og laglínur koma saman á töfrandi hátt í nýrri merkingu á meðan popplögin standa samhliða verki sem skrifað er fyrir kirkjuorgel.