Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020

Vinneren av Nordisk råds litteraturpris Monika Fagerholm
Photographer
Niklas Sandstrom
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2020 hlýtur verkið „Vem dödade bambi?“ eftir finnska rithöfundinn Moniku Fagerholm.

Rökstuðningur dómnefndar

Skáldsagan Vem dödade bambi? („Hver drap Bamba?“) eftir Moniku Fagerholm ólgar af orku og fáguðum siðferðisboðskap. Hópnauðgun er framin af unglingum úr efri stétt hins vel stæða Villastaden í útjaðri Helsingfors. Fagerholm beinir sjónum ekki að þolanda nauðgunarinnar heldur að gerendunum og atburðarásinni fyrir og eftir nauðgunina. Einkum verða tilraunir fullorðna fólksins til að breiða yfir orðinn hlut að framúrskarandi beittri samfélagsádeilu í meðförum höfundar. Tungumálið veltur fram, fullt af krafti og átakanlegum töfrum. Í hinum þétta vef samtala, stefja og vísana í dægurmenningu býr vægðarlaus sannleikur sem persónurnar fá ekki varist. Gusten Grippe, sá eini af gerendunum sem gengst við sekt sinni, myndar mótvægi við hinn myrka sogkraft herbergisins þar sem árásin átti sér stað. Löngun eftir hinu ósnerta er stillt upp gegn yfirborðsmennskunni og metorðaþorstanum sem einkennir samtíma okkar – lífsnauðsynlegri löngun sem er miðlað í formi svipmynda af ást og vináttu, stunda sem má snúa aftur til og sækja styrk í.