Handhafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2020

Dag Johan Haugerud och Yngve Sæther som vinner Nordiska rådets filmpris 2020 för filmen Barn fick ta emot Statyetten på produktionskontoret tisdag kväll.

Dag Johan Haugerud och Yngve Sæther som vinner Nordiska rådets filmpris 2020 för filmen Barn fick ta emot Statyetten på produktionskontoret tisdag kväll.

Photographer
Margareth Kwarteng / Kulturmeglerne
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2020 hlýtur norska kvikmyndin „Barn“ eftir Dag Johan Haugerud handritshöfund og leikstjóra og Yngve Sæther framleiðanda.

Rökstuðningur dómnefndar

Þrettán ára barn deyr í kjölfar ósættis við samnemanda á skólalóð. Atvikið leiðir af sér aragrúa nýrra vangaveltna og mikla togstreitu meðal hinna fullorðnu aðstandenda barnanna og knýr fram atburðarásina í Barn („Börn“), metnaðarfullri og umhugsunarverðri kvikmynd Dags Johans Haugerud. Haugerud kannar sambandið milli barns og fullorðins af innlifun og alvöruþunga og vekur ýmsar áleitnar spurningar. Hversu vel þekkja foreldrar og kennarar börnin sem þeir bera ábyrgð á? Að hve miklu leyti ber foreldrum skylda til að trúa börnum sínum? Að hve miklu leyti eiga þeir að vernda þau? Að hve miklu leyti eiga þeir að vernda þau? Geta hagsmunir barnsins ávallt verið í fyrirrúmi? Og af hverju er verra að eitthvað hræðilegt hendi barn en fullorðna manneskju?

 

Haugerud lýsir flóknum og áhugaverðum persónum og kringumstæðum þeirra í kvikmynd með breiða skírskotun sem verður jafnframt að sögu um Noreg samtímans. Pólitískar hugsjónir foreldranna læða sér inn í samræður þeirra um börnin og hvernig skuli annast þau. Skólastjóri barnanna upplifir að kröfur kerfisins og stjórnsýslunnar rekist á hennar eigin óskir og vilja. Úr þessu sprettur hin svarta kímni í Barn, sem verður þess valdandi að myndin er aldrei of þungbær áhorfs þó að viðfangsefnið sé erfitt. Kímnin skín líka í gegn þegar foreldrarnir reyna með misjöfnum árangri að tempra eigin hégóma og yfirgangssemi í nafni friðar og umburðarlyndis. Sum þeirra uppgötva hliðar á sjálfum sér sem þau eru miður stolt af. Kannski hin fullorðnu séu líka börn innst inni.

 

Dag Johan Haugerud er kvikmyndagerðarmaður með skýra og sérstæða sýn á heiminn og óvenju gott eyra fyrir samtölum. Í áranna rás hefur hann ræktað gjöfult samstarf, einkennt af hlýju og trúnaðartrausti, við marga af helstu leikurum Noregs og í Barn laða leikstjórinn og leikararnir fram það besta hver í öðrum. Þetta er margslungin mynd um það sem skiptir mestu máli.

 

Titill á frummáli: Barn

Titill á ensku: Beware of Children

Leikstjórn: Dag Johan Haugerud

Handritshöfundur: Dag Johan Haugerud

Framleiðandi: Yngve Sæther