Handhafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024
Dag Johan Haugerud receives the 2024 Nordic Council Film Prize for the film Sex. (Producer: Motlys)
Rökstuðningur
Kynlíf er ekki bara kynlíf. Það hefur aldrei verið jafn greinilegt og í kvikmyndinni "Sex" eftir Dag Johan Haugerud. Í henni er kynlíf eins og glerstrendingur sem sýnir okkur allt litrófið. Við fylgjumst með fólki ganga í gegnum ákafa og óvænta kynlífsreynslu og sjáum hvernig það stækkar sem einstaklingar, fálmar eftir einhverju til að festa hönd á, missir sjónar á sjálfu sér og uppgötvar að það getur verið eitthvað annað, eitthvað meira en það hafði áður haldið.
Í kvikmyndinni "Sex" gera tveir vinir, sem leiknir eru af mikilli list af Jan Gunnar Røise og Thorbjørn Harr, slíkar uppgötvanir um sjálfa sig. Í kringum þá ólgar Ósló, borgin þeirra, einnig af breytingum; sífelldri endurskipulagningu og endurbyggingu. Lífið er fljótandi og hverfult. Þessu fylgja ýmsar áskoranir, ekki síst fyrir maka þeirra og börn. Þrátt fyrir það býr mikil hlýja í kvikmynd Haugeruds, sem hverfist um fallega vináttu. Einnig eru mörg atriðanna bráðfyndin, þar sem persónur reyna að halda andliti frammi fyrir uppgötvunum um einkalíf annarra.
Handrit Haugeruds vekur áhorfandann svo sannarlega til umhugsunar. Eitt umhugsunarefnið varðar togstreituna á milli líkamstjáningar og orða. Kynlíf getur líka verið afdrep þar sem leitað er skjóls undan tungumálinu og þegar kynlífinu er þröngvað aftur inn í orðin, þegar sagt er frá því og rýnt í það, getur eitthvað farið forgörðum. Einnig er því velt upp hvað skapar nánd í sambandi og hverjar afleiðingar geta orðið ef fólki kemur ekki saman um hvað það er.
Dag Johan Haugerud hefur sérstætt sjónarhorn og stíl og sýnir hugrekki í nálgun sinni á hinar stóru spurningar og ráðgátur tilverunnar. Titill myndarinnar má segja að sé í senn dæmigerður, tilkomumikill og djarfur. Fyrir þessa jafnvægislist er Haugerud vel að verðlaununum kominn.
Þetta er í annað sinn sem Dag Johan Haugerud og Motlys hljóta kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs en Haugerud og Yngve Sæther hlutu verðlaunin árið 2022 fyrir kvikmyndina "Barn".