Handhafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Rökstuðningur dómnefndar
Með hæglátri en jafnframt kjarkmikilli sýn fangar þessi frásögn kjarnann í einmanalegum lífsháttum eyjarskeggja. Myndin teygir sig langt handan þeirrar spurningar hvort íbúar eyjarinnar eigi að vera um kyrrt eða flytja burt – hún fer á dýptina og fjallar um persónulega sorg, tilfinningalega lömun og þær aðkallandi áskoranir sem fylgja vistkerfiskrísu. Þegar móðir aðalpersónunnar Kára fellur frá tapar fjölskyldan bæði stefnu sinni og samkennd, um leið og minnkandi fiskistofn bendir til þess að sjálf Móðir Jörð standi ótryggum fótum. Með ljóðrænum andstæðum – konum sem synda frjálslega í sjónum andspænis linnulausum takti verksmiðjunnar – undirstrikar kvikmyndin hina sterku þörf fyrir að endurnýja tengslin við náttúruna.
Í stað þess að treysta á dramatíska fléttu varpar frásögnin smám saman ljósi á hina hljóðu en kraftmiklu baráttu fyrir að lifa af og viðhalda fjölskyldutengslum. Ungu leikararnir standa sig frábærlega, með tryggum stuðningi reyndari kollega, og ásamt stórkostlegri kvikmyndatöku og hrífandi tónlist gera þeir myndina að tímamótaverki í færeyskri – og norrænni – kvikmyndasögu.
Í fyrsta sinn getum við því, með stolti og hlýju, boðið Færeyinga velkomna í sviðsljósið í þessari virtu norrænu keppni. Til hamingju með þennan stórmerka árangur!