Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2018

Vinneren av Nordisk Råds Musikkpris 2018

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2018 hlýtur Nils Henrik Asheim frá Noregi fyrir verkið Muohta.

Photographer
johannes Jansson
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2018 hlýtur Nils Henrik Asheim frá Noregi fyrir verkið Muohta.

Nils Henrik Asheim hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2018. Það var tilkynnt rétt í þessu á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Ósló. Nils Henrik Asheim hlýtur verðlaunin fyrir tónverkið Muohta, sem er einkar nútímalegt en býr jafnframt yfir sögulegri meðvitund.

Rökstuðningur dómnefndar

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2018 hlýtur tónverk sem er einkar nútímalegt en býr jafnframt yfir sögulegri meðvitund. Fyrsta hljóðfæri okkar allra, mannsröddin, leikur lykilhlutverk í þessu verki þar sem tungumálið er fléttað varfærnislega inn í hljóðheiminn. Hlustendum er boðið að stíga inn í öðruvísi upplifun á tíma, eða öllu heldur inn í síbreytilegt ástand sem inniheldur snert af áhættu og óróleika. Verkið er í 18 hlutum og í hverjum hluta er rýnt í eitt orð úr samískri tungu sem tengist snjó. Orðin eru fengin úr doktorsritgerð Inger Marie Gaup Eira, „Muohttaga jávohis giella“ (Hið þögla tungumál snjósins). Sum orðin ná beint yfir snjó en önnur lýsa áhrifum hans á hversdagslíf manna – til dæmis ulahat, sem þýðir „vetrarslóði sem hefur snjóað yfir og er vart sýnilegur“. Muohta, verk Nils Henrik Asheim fyrir kór og strengjasveit, lýsir hægum breytingum sem eru nánast ósýnilegar mannsauganu. Verkið var frumflutt í Ósló árið 2017 ásamt Árstíðunum eftir Joseph Haydn. Í tengslum við viðburðinn sagðist tónskáldið hafa fengið innblástur til að stíga út fyrir þá heimssýn sem á rætur að rekja til tíma Haydns og gerir ráð fyrir stöðugum framförum og stjórn mannsins á umhverfi sínu, og halda á vit upprunaþjóða og reynslu þeirra af nánu samlífi með náttúrunni.

Nils Henrik Asheim er fæddur árið 1960. Hann hefur starfað sem tónskáld, orgelleikari, skipuleggjandi og listrænn stjórnandi frá upphafi ferils síns og er gæddur einstökum hæfileikum til að opna heim samtímatónlistar fyrir ólíkum tónlistarstefnum og þar með tengjast nýjum hlustendum.