Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2024

Rune Glerup får Nordisk Råds musikpris 2024 for værket "Om Lys og Lethed" 

Ljósmyndari
Árni Beinteinn
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2014 hlýtur Rune Glerup frá Danmörku fyrir verkið „Om Lys og Lethed“.

Rökstuðningur dómnefndar 

Danska tónskáldið Rune Glerup (f. 1981) hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2024 fyrir fiðlukonsertinn "Om Lys og Lethed" (2022). Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins pantaði verkið hjá Glerup, sem samdi konsertinn sérstaklega fyrir fiðluleikarann Isabelle Faust og í nánu samstarfi við hana. Verkið markar hátind á löngum og eftirtektarverðum ferli Glerups. Tónsmíðar hans hafa ávallt verið án málamiðlana, knappar að uppbyggingu og skýrar. Í "Om Lys og Lethed" töfrar hann fram skýlausa berskjöldun í fögru jafnvægi við aðrar hlutbundnari hljóðmyndir, sem eru kristaltærar svo að minnir á höggmyndalist. 
 

Tónlistin í konsertinum minnir nánast á arkitektúr og geymir jafnframt mikla ákefð, sem helgast af hárnákvæmri tímasetningu Glerups og meistaralegu valdi á hljóðfærasetningu. Til að ná þessu fram hefur Glerup unnið með þætti sem einkennast af kyrrstöðu og sem mynda samhangandi heildir innan verksins, þætti sem eru stöðugir án þess að umbreytast smám saman í eitthvað annað. Hljóðið er flókið en um leið mínímalískt og úr verður tilfinning fyrir ró, einnig þegar sem mest er um að vera. Þessi að því er virðist fyrirhafnarlausa samsetning ólíkra heima skilar sér í glæsilegu tónverki sem hrífur áheyrandann með sér og lætur engan ósnortinn.
 

Konsertinn var saminn í kjölfar ritstíflu, sem Glerup tjáði sig opinskátt um, og útkoman er þetta beinskeytta og heillandi verk sem kemur beint frá hjartanu. Það er knappt og fágað en ber um leið ótvíræð merki mannlegs handbragðs.