Hildá Länsman & Tuomas Norvio
Fyrsta sameiginlega plata þeirra Hildá Länsman og Tuomas Norvio, Dajan, inniheldur hljóðheim sem aldrei hefur heyrst fyrr. Hér mætir luohti, hin forna jojk-hefð norðursamískunnar, margbrotnum, nútímalegum og rafrænum hljóðmyndum. Mörkin eru máð út og úr verða glæný, djörf og töfrandi samlegðaráhrif – ferðalag sem spannar allt frá rólegri og angurværri stemningu sem minnir á kvikmynd og til orkumikilla danstakta.
Ljóðrænir, fallegir og magnaðir textar eftir Hildá Länsman fjalla um ýmsar hliðar þess að finna sína eigin menningarlegu rödd, um móður jörð, fjölskylduarfleifð og ást.
Länsman er margverðlaunaður meistari á sviði hefðbundinnar tónlistar, með raddsvið sem spannar allt frá loftkenndum, mjúkum og tærum tónum yfir í ögrandi og kraftmikinn söng. Raddbeitingin reynir á mörk hefðarinnar og er margbrotnari en nokkru sinni fyrr. Tuomas Norvio er á meðal fremstu listamanna á sínu sviði – rafrænn hljóðhönnuður, tónskáld og tónlistarmaður sem hefur átt í samstarfi við fjölda listamanna í fremstu röð. Í sameiningu skapa Hildá og Tuomas eitthvað alveg einstakt, úthugsað og stílhreint út í gegn. Samstarfið afhjúpar nýjar og heillandi hliðar hjá þeim báðum.
Í Dajan mætast fortíð og nútíð, hefð, náttúra og tækni með slíkum hætti að útkoman er meistaraverk.