Hilde Hagerup

Ljósmyndari
Anna Julia Granberg-Blunderbuss
Hilde Hagerup: Du eneste – historien om Gunvor Hofmo og Ruth Maier, unglingaskáldsaga, Gyldendal. 2025. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Du eneste („Þú hin eina“, hefur ekki komið út á íslensku) er skáldsaga byggð á sannri sögu tveggja ungra kvenna, Gunvor Hofmo og Ruth Maier, á tímum seinni heimsstyrjaldar. Gunvor er nítján ára og vinnur á býli við Mjøsa-stöðuvatn. Þar hittir hún Ruth, gyðing sem hefur flúið frá Vínarborg til Noregs. Í skáldsögunni er fjallað um ástina sem kviknar á milli þeirra. Þær eru ólíkar manngerðir, Gunvor er einræn og Ruth mannblendin, en þær deila voninni um sameiginlega framtíð. Sjónarhorn sögunnar er hjá Gunvor og Ruth á víxl, einn kafla hjá hvorri í senn. Ástarfundir þeirra eru varfærnislegir og hlýir en drungaleg sviðsmyndin einkennist af stríði og gyðingaofsóknum og höfundurinn ljóstrar upp um örlög Ruth strax í fyrsta kaflanum:  

„Eftir fjórar vikur verður Ruth Maier átján ára. Eftir fjögur ár deyr hún.“  

Du eneste er mögnuð lýsing á ást og á því að hitta sálufélaga. Inni á milli verður hin nýkviknaða ást yfirsterkari örvæntingu og ótta og þá heldur lesandinn niðri í sér andanum og vonast eftir farsælum endalokum. En þegar dregur að lokum bókarinnar ber Gunvor „sorgina eins og hrukku á enninu. Stimpil reiðinnar. Gerðan af Franco á Spáni. Litaðan af Hitler í Berlín og Vín og Ósló.“  

Það eru hinir manneskjulegu og kunnuglegu þættir sögunnar sem gera hana að svo sterkri lestrarupplifun sem raun ber vitni. Hún opnar á samkennd og íhygli með ástríðu sinni og ljóðrænu. Skipt er taktfast milli stuttra og gagnorðra setninga og fljótandi hugsanaflæðis. Einnig gefst rými fyrir þögn inn á milli orðanna. Þessar hræringar tungumálsins auka ákefð og nánd í lestrarupplifuninni.  

Ruth Maier var tekin af lífi í gasklefa í Auschwitz árið 1942. Gunvor Hofmo var eitt helsta ljóðskáld Noregs og lést árið 1995. 

Hilde Hagerup (f. 1976) er verðlaunarithöfundur sem hefur sent frá sér fjölda verka. Einnig hefur hún skrifað fyrir sjónvarp og leikhús. Verk hennar hafa verið þýdd á fjölda tungumála.