Hugla - Færeyjar
Hugla hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Færeysku sjálfboðasamtökin Hugla eru tilnefnd fyrir starf sitt að því að draga úr magni úrgangs og efla sjálfbærni með aðferðum kennslufræði. Þetta gera samtökin með því að virkja börn og fullorðna úr hinum ýmsu skólum og stofnunum í skapandi endurnýtingarverkefnum þar sem rusli er breytt í listaverk sem stillt er upp í opinberu rými.
Einnig standa samtökin fyrir fjölskyldudögum og hátíðavinnusmiðjum án þátttökugjalds þar sem börn og fullorðnir geta hist og skapað eitthvað saman úr endurnýttum efniviði. Þannig kemur fólk saman til að efla hringrásarhugsun og ábyrgðarkennd gagnvart náttúrunni.
Gegnum leik og starf læra börn að meta virði auðlinda, taka ábyrgð á umgengni sinni við náttúruna og sjá möguleika í því sem aðrir líta á sem rusl. Þannig má draga úr magni úrgangs sem myndast og kenna börnum að temja sér sjálfbærnimiðaða hugsun og hegðun snemma á lífsleiðinni.
Hugla eru einu samtökin í Færeyjum sem sameina úrgangsforvarnir, kennslu og skapandi nálgun í starfi sínu. Hin þverlæga og praktíska nálgun samtakanna dregur úr úrgangsmyndun og eflir jafnframt meðvitund almenning um umhverfismál, auk þess að kynna starf norrænu landanna í umhverfismálum fyrir almenningi með grípandi hætti. Hér er því á ferð líkan sem gefur bæði umhverfislegan, félagslegan og kennslufræðilegan ávinning. Fengin reynsla og kennsluefni Hugla geta veitt innblástur fyrir svipað starf í öðrum löndum og fyrir fjölþjóðlegt samstarf um sjálfbærnifræðslu.