Jeppe Ernst

Ljósmyndari
Niklas Ottander (Spektrals)
Tónskáldið Jeppe Ernst hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Solo (Cantus II).

Fá tónskáld búa yfir jafn skýrri og persónulegri tjáningu og Jeppe Ernst. Að upplifa tónlist hans er eins og að vera boðið inn í einbeitt rými þar sem manneskjan er í forgrunni. Tónlistarfólkið iðkar mínímalískar og samhæfðar hreyfingar í fáguðum, tónlistarlegum leik. Allt er lágstemmt og enginn ofleikur hlutverk sitt. Efniviðurinn er ávallt þaninn til hins ítrasta. Engin fleðulæti eiga sér stað gagnvart áhorfendum.

Í tónlist Jeppes býr einmanaleiki með mikla tilvistarlega dýpt. Það má greina í þeirri hlutlægni sem einkennir samskipti tónlistarfólksins. Jeppe er eitt áhugaverðasta tónskáld Danmerkur, einn af fáum sem geta virkilega haft áhrif í vonlausum heimi.

 Og einnig má nefna að yfirleitt er ekkert hljóð í tónlist hans.